Aðlögun nemenda af erlendum uppruna í skóla án aðgreiningar

Viðfangsefni þessarar ritgerðar er menntun nemenda af erlendum uppruna í nýbúadeild grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, Sunnuskóla, þar sem lögð er áhersla á hugmyndafræði um skóla án aðgreiningar og fjölmenningarlega menntun. Meginmarkmið ritgerðarinnar er annars vegar að kanna kennsluaðferðir og nálg...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kamjorn, Bopit, 1963-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/23781
Description
Summary:Viðfangsefni þessarar ritgerðar er menntun nemenda af erlendum uppruna í nýbúadeild grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, Sunnuskóla, þar sem lögð er áhersla á hugmyndafræði um skóla án aðgreiningar og fjölmenningarlega menntun. Meginmarkmið ritgerðarinnar er annars vegar að kanna kennsluaðferðir og nálgun skólans gagnvart kennslu nemenda af erlendum uppruna og hins vegar hvernig kennarar, foreldrar og nemendur af erlendum uppruna upplifa kennslu og nám í íslensku sem öðru máli. Rannsóknir, sem gerðar hafa verið á þessu sviði, eru einnig skoðaðar út frá lögum um grunnskóla, aðalnámskrám og fræðilegum kenningum. Rannsókninni er ætlað að leita svara við eftirfarandi spurningu: Hvaða viðhorf kennara og aðferðir eru vænlegastar til árangurs í kennslu íslensku sem annars máls og hvernig er hægt að stuðla að virku tvítyngi nemenda af erlendum uppruna í íslensku samfélagi? Viðtöl voru tekin í desember 2014 við tvo stjórnendur, sjö kennara, sjö nemendur af erlendum uppruna og þrjá foreldra. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að þátttakendur töldu að ekki væri tekið nægilegt mið af kennslu móðurmáls samhliða íslensku. Einnig kom fram að taka þyrfti meira tillit til menningarlegs bakgrunns nemenda til þess að geta veitt þeim betri stuðning, bæði heima fyrir og í skólanum. Þá kom í ljós að þátttakendur töldu að námsefni fyrir nemendur af erlendum uppruna, sem eru nýbyrjaðir að læra íslensku, væri ófullnægjandi. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að nauðsynlegt er að endurskoða kennsluaðferðir með tilliti til þess að grunnskólinn á að endurspegla fjölmenningarlegt nám með fjölbreyttum kennsluaðferðum í móðurmáli samhliða íslensku. Kennsluefnið þarf að vera hvetjandi, vekja áhuga nemenda af erlendum uppruna og virkja þá betur. Þeir sem tóku þátt í rannsókninni töldu að nemendur fengju ekki nægjanlega þekkingu og þjálfun í íslensku. The subject of this thesis is the education of students of foreign origin in the International Department of a compulsory school in the Greater Area of Reykjavík, which focuses on multicultural ...