Deilihagkerfi : skammtímaleiga, heimagisting og leiga einkabifreiða á Íslandi

Deilihagkerfi hefur marga anga en það sem hefur hvað mest verið til staðar hér á Íslandi í tengslum við ferðaþjónustu. Þetta eru heimagisting, skammtímaleiga á íbúðum og leiga á einkabifreiðum. Í þessu verkefni er kannaður lagalegur grundvöllur þessara þátta innan deilihagkerfisins ásamt því að hugt...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Berglind Guðmundsdóttir 1987-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/23728
Description
Summary:Deilihagkerfi hefur marga anga en það sem hefur hvað mest verið til staðar hér á Íslandi í tengslum við ferðaþjónustu. Þetta eru heimagisting, skammtímaleiga á íbúðum og leiga á einkabifreiðum. Í þessu verkefni er kannaður lagalegur grundvöllur þessara þátta innan deilihagkerfisins ásamt því að hugtakið er skilgreint. Einnig er greint lauslega frá þróun ferðaþjónustu hér á landi og hverjir áherslupunktarnir hafa verið í gegnum árin. Á síðasta þingári (2014-2015) var lagt fram lagafrumvarp til breytingar á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald sem ætlað var að ná utan um þær breytingar sem hafa orðið með auknu framboði gistirýma í heimagistingu eða skammtímaleigu. Ekki náðist að klára það frumvarp en samkvæmt Ragnheiði Elínu Árnadóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra er unnið að nýju frumvarpi sem lagt verður fram á þessu ári. Helstu niðurstöður þessa verkefnis eru að lagalegur grundvöllur leigu á einkabifreiðum er traustur en það má rekja til þess að lög voru mótuð áður en starfsemin fór á flug. Það voru nokkrir punktar í frumvarpinu sem lagt var fram á síðasta ári sem fengu athugasemdir, sem snéru aðallega að því hvernig framkvæma ætti hlutina og á ábyrgð hvers sú framkvæmd væri. Það verður áhugavert að sjá hvernig komandi frumvarp mun hljóða. The sharing economy has been gaining momentum in the past decades. In Iceland it has been mostly present in tourism, in homestay, short-term renting of property and renting of privately owned vehicles. In this thesis the legal ground of this type of service is analyzed. Also is the history of tourism in Iceland loosely explained and the main points analyzed. Last Congress year (2014-2015) a legal bill was introduced to change the laws regarding restaurants, accommodation and festivities. The point of those changes was to fathom all the changes that have taken place in the past decades. The process of the bill was not complete in that year, but according to Ragnheiður Elín Árnadóttir, minister of Industry- and Commerce , a new bill is to be introduced this ...