Tillaga 38 : um möguleika á sameiningu yfirstjórna Íslenska dansflokksins, Íslensku óperunnar, SInfóníuhljómsveitar Íslands og Þjóðleikhússins.

Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort hagræðing væri fólgin í því að sameina yfirstjórnir Íslenska dansflokksins, Íslensku óperunnar, Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Þjóðleikhússins út frá hagræðingartillögu ríkisstjórnarinnar sem sett var fram í nóvember 2013. Í verkefninu var megináherslan á...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Arna Ýr Sævarsdóttir 1986-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/23717
Description
Summary:Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort hagræðing væri fólgin í því að sameina yfirstjórnir Íslenska dansflokksins, Íslensku óperunnar, Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Þjóðleikhússins út frá hagræðingartillögu ríkisstjórnarinnar sem sett var fram í nóvember 2013. Í verkefninu var megináherslan á að meta menningarlegt virði stofnananna fyrir sameiningu og skoða hvaða áhrif sameiningin myndi hafa á þetta menningarlega virði og frelsi til sköpunar. Gerð var áhættugreining á tillögu til sameiningar og dregnir fram þeir þættir sem í þessu samhengi voru taldir hafa mesta vægið í sambandi við sameiningu fjögurra mismunandi menningarstofnana. Kenningar John P. Kotter um átta skrefa leið til farsælla breytinga, voru skoðaðar í kjölinn. Þá voru lög um þessar stofnanir höfð til grundvallar ásamt menningarstefnu ríkisins, sem samþykkt var árið 2013. Rannsóknaraðferðin var tilviksrannsókn þar sem viðtöl voru tekin við stjórnendur stofnananna ásamt því að greina fjárhagsleg gögn og niðurstöður settar fram með greinandi framsetningu. Byggt var upp mögulegt skipurit fyrir sameinaða stofnun með það að markmiði að skoða hvernig mætti stilla upp mögulegri sameinaðri stofnun. The aim of the research was to examine if economical gain would be achieved by merging the overhead of the Icelandic Dance Company, the Icelandic Opera, the Iceland Symphony Orchestra and the National Theatre. The basis of the research is a suggestion from a committee appointed by the government to find opportunities to increase efficiency in governmental management. The recommendation was introduced in November 2013. The main emphasis of the research is to find the cultural value of the institutions before a merger and to figure out if and how a merger would affect them and their freedom to create and perform art. Risk analysis was performed to highlight those factors in the context of a merger between four different cultural institutes that were thought to have the most relevance. John P. Kotter’s eight step theory by to successful change was the basis ...