Mat á kvíða- og þunglyndiseinkennum íslenskra barna sem búið hafa við heimilisofbeldi

Börn sem búa við heimilisofbeldi geta hlotið af því margvíslegan skaða en lítið er vitað um eðli og afleiðingar heimilisofbeldis á börn á Íslandi. Markmið rannsóknarinnar var að meta hegðun og líðan íslenskra barna sem hafa orðið fyrir og/eða orðið vitni að ofbeldi á heimili sínu. Þátttakendur í ran...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Lucinda Árnadóttir 1982-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/23687
Description
Summary:Börn sem búa við heimilisofbeldi geta hlotið af því margvíslegan skaða en lítið er vitað um eðli og afleiðingar heimilisofbeldis á börn á Íslandi. Markmið rannsóknarinnar var að meta hegðun og líðan íslenskra barna sem hafa orðið fyrir og/eða orðið vitni að ofbeldi á heimili sínu. Þátttakendur í rannsókninni voru 28 börn sem tóku þátt í hópmeðferð sem starfrækt var á vegum Barnaverndarstofu fyrir börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi á heimili og/eða orðið vitni að ofbeldi á heimili og forráðamenn þeirra. Úrtakið nær til 85% þeirra barna sem þáðu boð um að taka þátt í hópmeðferðinni yfir tveggja ára skeið. Einkenni kvíða og þunglyndis voru metin með MASC og CDI sem börnin svöruðu en auk þess var ítarlegt hálfstaðlað inntökuviðtal lagt fyrir forráðamenn barnanna. Einkenni kvíða og þunglyndis meðal þátttakenda voru algengari í samanburði við börn sem ekki hafa búið við ofbeldi á heimili. Niðurstöður sýndu að 30% barnanna voru með einkenni kvíða yfir klínískum mörkum og 20% voru yfir klínískum mörkum þunglyndis. Hátt hlutfall barnanna (53,6%) höfðu orðið fyrir einelti, 30% leið illa eða mjög illa í skóla og 35,7% höfðu greint frá sjálfsvígshugsunum. Niðurstöður sýna háa tíðni kvíða, þunglyndis og sálfélagslegs vanda meðal íslenskra barna sem búið hafa við heimilisofbeldi. Þrátt fyrir að um sé að ræða tiltölulega fá börn þá eru útbreiddir tilfinningalegir og félagslegir erfiðleikar þátttakenda til merkis um og undirstrika alvarleika áhrifa heimilisofbeldis á börn sem við það búa hvort sem ofbeldinu er beint að þeim sjálfum eða ekki. Children who live with domestic violence can suffer many harmful consequences. Little is known about the nature and consequences of domestic violence on children in Iceland. The aim of this study was to evaluate common factors, behavior and psychosocial wellbeing of children who have witnessed and/or suffered psychological and/or physical abuse in their homes. Participants in the study were 28 children who took part in a group therapy that was conducted by the Government Agency for Child ...