„Ég veit það ekki, ég er mjög lost núna“: Framtíðarsýn þvermenningarlegra ungmenna á Íslandi
Markmið þessarar rannsóknar var að öðlast innsýn í reynsluheim þvermenningarlegra ungmenna á Íslandi og sýn þeirra á eigin framtíð. Rannsóknin byggir á viðtölum við átta ungmenni sem reynslu hafa af búsetu og námi í mismunandi löndum. Félagsleg tengsl skiptu miklu í líf ungmennanna þar sem þau misst...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Master Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2016
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/23561 |
Summary: | Markmið þessarar rannsóknar var að öðlast innsýn í reynsluheim þvermenningarlegra ungmenna á Íslandi og sýn þeirra á eigin framtíð. Rannsóknin byggir á viðtölum við átta ungmenni sem reynslu hafa af búsetu og námi í mismunandi löndum. Félagsleg tengsl skiptu miklu í líf ungmennanna þar sem þau misstu tengsl þegar flutt var og reynt var að mynda ný tengsl á nýjum stað. Virtust félagsleg tengsl þó litlu skipta varðandi framtíðarsýn þeirra. Niðurstöður benda til að framtíðarsýn þvermenningarlegra ungmenna í þessari rannsókn taki mið af rótleysi og upplifun af fordómum. Rótlaus ungmenni voru þó ekki stefnulaus. Rótleysi birtist í togstreitu á milli uppruna- og búsetulands og að sjá framtíð sína hvorki hér á landi né í upprunalandinu. Fordómar birtust í almennri framkomu, viðurkenningu á námi og réttindum erlendis frá og atvinnumöguleikum. Ungmennin í rannsókninni upplifðu neikvæð áhrif rótleysis, sem birtust í því að upplifa sig hvergi eiga heima sem og jákvæð sem birtust í upplifun af frelsi og óttaleysi. Upplifun af íslenska skólakerfinu gaf til kynna að misvel gekk að koma til móts við námslegar þarfir þeirra. Í ljósi niðurstaðna er mikilvægt að náms- og starfsráðgjafar og kennarar séu meðvitaðir um ólíkar námslegar- og tilfinningalegar þarfir þvermenningarlegra barna og ungmenna. |
---|