Innflytjendur og Ísland. Útilokun og aðild

Tilgangur og markmið þessarar ritgerðar er að skoða útilokun og aðild innflytjenda að íslensku samfélagi. Fengist verður við að svara þeirri spurningu hvernig félagsleg flokkun íslensks samfélags fer fram, sem leiðir að því að ákveðnir hópar eru flokkaðir sem innflytjendur en aðrir ekki. Innflytjend...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Þórunn Guðjónsdóttir 1991-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/23547
Description
Summary:Tilgangur og markmið þessarar ritgerðar er að skoða útilokun og aðild innflytjenda að íslensku samfélagi. Fengist verður við að svara þeirri spurningu hvernig félagsleg flokkun íslensks samfélags fer fram, sem leiðir að því að ákveðnir hópar eru flokkaðir sem innflytjendur en aðrir ekki. Innflytjendur flytjast til Íslands frá öllum heimshlutum en fólk af ákveðnu þjóðerni, til dæmis Austur-Evrópubúar, Filippseyingar og Taílendingar, virðist frekar flokkað sem innflytjendur en fólk sem álitið er vestrænt. Í ritgerðinni verður farið yfir hugtök og kenningar sem snúa að innflytjendum, rannsóknir á etnísku stigveldi, skilgreiningu á landamærum og mörkum samfélaga og litið verður á orðræðu og orðanotkun á Íslandi með það að markmiði að finna út mynstur í útilokun úr og aðild innflytjenda að íslensku samfélagi.