Skráð fasteignafélög á íslenskum markaði. Lífeyrissjóðir í hópi stærstu eigenda og eign þeirra í skuldabréfum fasteignafélaganna
Í þessari lokaritgerð verður greind þróun eignarhalds lífeyrissjóða sem eru í hópi tíu stærstu hluthafa í þremur skráðum fasteignafélögum á aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland, Regin hf., Reitum fasteignafélagi hf. og Eik fasteignafélagi hf. Tímabil greiningar var frá því félögin voru skráð á aðalmarkað...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2016
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/23486 |
Summary: | Í þessari lokaritgerð verður greind þróun eignarhalds lífeyrissjóða sem eru í hópi tíu stærstu hluthafa í þremur skráðum fasteignafélögum á aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland, Regin hf., Reitum fasteignafélagi hf. og Eik fasteignafélagi hf. Tímabil greiningar var frá því félögin voru skráð á aðalmarkað NASDAQ OMX Iceland til 1. október 2015. Dagsetningin miðaðist við upphaf greiningar vinnunnar. Í ritgerðinni var einnig sýnt fram á hversu mikil hlutabréfaeign lífeyrissjóðanna var í þessum félögum sé miðað við tíu stærstu hluthafana. Eingöngu var litið til beinnar eignar, en lífeyrissjóðir geta jafnframt átt hlutdeild í fasteignafélögunum í gegnum sjóði. Það er því hugsanlegt að almennt sé hlutdeild lífeyrissjóða í þessum félögum meiri en fram kemur í þessari greiningu. Markmið verkefnisins var að greina þróun eignahalds lífeyrissjóða í fasteignafélögunum og varpa ljósi á eign sömu lífeyrissjóða í skuldabréfum umræddra fasteignafélaga. Helstu niðurstöður voru þær að í flestum tilfellum voru lífeyrissjóðir í hópi tíu stærstu hluthafa smám saman að auka hlutdeild sína í fasteignafélögunum þremur. Eign lífeyrissjóða í hópi tíu stærstu hluthafa fasteignafélaganna í skuldabréfum sömu félaga var í öllum tilfellum undir 1,5% af hreinum eignum þeirra miðað við árslok 2014. |
---|