Stjórnskipulag Knattspyrnusambands Íslands

Í ritsmíði þessari er stjórnskipulagi Knattspyrnusambands Íslands lýst og það greint út frá kenningum um stjórnun og rekstur félagasamtaka. Helstu hugtök sem útskýra starfsemi skipulagsheilda eru mátuð við Knattspyrnusamband Íslands. Þá er fjallað um hlutverk, starfssvið og verkaskiptingu sem tíðkas...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Birgir Ólafur Helgason 1992-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/23464
Description
Summary:Í ritsmíði þessari er stjórnskipulagi Knattspyrnusambands Íslands lýst og það greint út frá kenningum um stjórnun og rekstur félagasamtaka. Helstu hugtök sem útskýra starfsemi skipulagsheilda eru mátuð við Knattspyrnusamband Íslands. Þá er fjallað um hlutverk, starfssvið og verkaskiptingu sem tíðkast almennt hjá lykilaðilum frjálsra félagasamtaka. Það er gert til þess að útskýra markvisst hvernig slíku er háttað innan sambandsins. Í ritsmíðinni byggir höfundur umfjöllun sína á ritstýrðum fræðibókum, ritrýndum greinum, lögum og starfsreglum knattspyrnusambandsins, viðtali og niðurstöðum spurningakönnunar. Spurningakönnun var send út til að kanna viðhorf stjórnarmanna Knattspyrnusambands Íslands gagnvart helstu meginhlutverkum stjórna frjálsra félagasamtaka. Viðhorf stjórnarmanna var afdráttarlaust varðandi flest hlutverk þó eilítil dreifing hafi sést í mælingum á stimpilhlutverki og rammahlutverki stjórna. Þá var einnig tekið viðtal við framkvæmdastjóra sambandsins til að fá nánari upplýsingar um skipulagsheildina. Höfundur hannaði skipurit sambandsins og færir rök fyrir því að skipulagsform sambandsins byggi á tveimur formgerðum. Annars vegar á sambandsfyrirkomulagi líkt og þekkist hjá frjálsum félagasamtökum og hins vegar starfaskipulagi eins og oft er notað í fyrirtækjarekstri. Niðurstaða höfundur er jafnframt sú að Knattspyrnusamband Íslands sé öflug skipulagsheild með skýrt boðvald og skýra ábyrgð. Þá er sérþekking starfsmanna á hinum ýmsum málefnum í hávegum höfð. Stórt og öflugt nefndarkerfi er við lýði ásamt því að sambandið hefur bæði starfandi formann og framkvæmdastjóra sem skipta með sér mikilvægustu verkum sambandsins. This thesis will outline the organizational structure of the Football Association of Iceland and analyse the structure within the framework of theories on management of Non-Governmental Organizations (NGOs). Key concepts used to explain the operation of NGOs are measured against the Football Association of Iceland. It also discusses roles of different actors, fields of work and ...