Of seint, óljóst og veikt: Hvernig og hvers vegna hugmyndin um fyrsta viðkomustaðinn í heilbrigðiskerfinu hefur misst marks

Fræðigreinar Þessi rannsókn snýst um hugmyndir og hagsmuni í heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Rannsóknin lýsir því hvernig annars vegar hugmyndin um heilsugæsluna sem fyrsta viðkomustað sjúklinga í heilbrigðiskerfinu og hugmyndin um það að sjúklingar eigi að hafa nokkurt val um það hvert þeir sæki þjó...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir 1955-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/23453
Description
Summary:Fræðigreinar Þessi rannsókn snýst um hugmyndir og hagsmuni í heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Rannsóknin lýsir því hvernig annars vegar hugmyndin um heilsugæsluna sem fyrsta viðkomustað sjúklinga í heilbrigðiskerfinu og hugmyndin um það að sjúklingar eigi að hafa nokkurt val um það hvert þeir sæki þjónustu innan kerfisins hafa tekist á við mótun kerfisins í hart nær hálfa öld. Leitast er við að varpa ljósi á þá spurningu hvers vegna stjórnvöldum hefur ekki tekist að ná því markmiði að heilsugæslan verði að jafnaði fyrsti viðkomustaðurinn í heilbrigðisþjónustunni. Markmið rannsóknarinnar er að öðlast betri skilning á því hvernig gjá milli markmiða og niðurstöðu í opinberri stefnumótun eins og greina má í þessu stefnumáli verður til. Byggt er m.a. á áralöngum rannsóknum á þróun íslenska heilbrigðiskerfisins, m.a. birtum og óbirtum gögnum úr rannsóknum höfundar og viðtölum við lækna, embættismenn og stjórnmálamenn. Stuðst er við kenningar um innleiðingarferli í opinberri stefnumótun til að draga upp fræðilega mynd af því hvernig framkvæmd og eftirfylgni þessarar stefnumótunar hefur gengið fyrir sig. Þá er gefin mynd af því hvernig mál komast á dagskrá stjórnvalda og hvers vegna tilraunir stjórnvalda til að koma á meiriháttar breytingum takast stundum, en oftast ekki. Meginniðurstöður rannsóknarinnar eru þær að betra aðgengi að heilsugæsluþjónustu fyrir landsmenn sem fyrstu lögin lögðu áherslu á var fyrst og fremst ætlað að ná til íbúa á landsbyggðinni. Aftur á móti, þá kom markmiðið um fyrsta viðkomustaðinn of seint fram sem stefnumið stjórnvalda, markmið stefnumótunar og innleiðingar voru óljós og misvísandi, og stjórntækin of veik. This research is about ideas, interests and institutions in health care in Iceland. It describes how the idea of primary care centres as the first point of patients´ contact in health care, on one hand, and the idea of patients´ freedom to choose where to seek medical care, on the other, have been the competing views shaping the system for almost fifty years. The research seeks to ...