„Einhver besta gjöf sem að heilsugæslunni hefur verið gefin.“ Félagsráðgjafar í heilsugæslu

Heilsugæslan á lögum samkvæmt að vera fyrsti viðkomustaður einstaklinga í leit að heilbrigðisþjónustu. Á landsvísu er þjónusta félagsráðgjafa í boði á þremur af 76 heilsugæslustöðvum. Þjónustan sem er veitt er mismunandi milli heilsugæslustöðva. Markmið þessarar rannsóknar var að varp...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Telma Hlín Helgadóttir 1985-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/23391
Description
Summary:Heilsugæslan á lögum samkvæmt að vera fyrsti viðkomustaður einstaklinga í leit að heilbrigðisþjónustu. Á landsvísu er þjónusta félagsráðgjafa í boði á þremur af 76 heilsugæslustöðvum. Þjónustan sem er veitt er mismunandi milli heilsugæslustöðva. Markmið þessarar rannsóknar var að varpa ljósi á verkefni félagsráðgjafa innan heilsugæslunnar og þróunarmöguleika þeirra. Einnig var stefna stjórnvalda skoðuð í málefnum heilsugæslunnar. Til að svara rannsóknarspurningunum voru í fyrsta lagi tekin viðtöl við fimm fagaðila, tvo félagsráðgjafa og þrjá lækna. Einnig var unnin stefnugreining á tillögum, lögum og þingskjölum frá Alþingi, ávörpum, greinum og opinberum skýrslum um málefni heilsugæslunnar. Niðurstöður leiða í ljós að verkefni félagsráðgjafa í heilsugæslu eru mjög fjölbreytt og ábyrgðarmikil. Félagsráðgjafarnir sinna utanumhaldi þverfaglegra teyma sem snúa að úrræðum fyrir skjólstæðinga á öllum aldri með heildarsýn að leiðarljósi. Viðmælendur voru sammála um að mikil tækifæri liggi í að bæta þjónustu í nærsamfélaginu með tilkomu fleiri félagsráðgjafa í heilsugæslu með tilheyrandi áherslu á forvarnir, heildarsýn og fjölskyldumiðun. Reynsla annarra og skoðun viðmælenda var meðal annars sú að með aðkomu félagsráðgjafa í heilsugæslu er hægt að bæta forvarnir, minnka kostnað og dreifa álagi. Stefna stjórnvalda á Íslandi er óskýr og virðist einkennast af stefnuleysi og stefnureki þar sem málefni heilsugæslunnar eru ekki í forgangi og því ekki til lykta leidd í þinglegri meðferð. Langtímastefna hefur ekki verið mótuð í heilbrigðisþjónustu og með hverri stjórn sem tekur við völdum virðist vinna fyrri stjórna oft virt að vettugi. Lykilorð: Heilsugæsla, þjónusta, stefna, stefnurek, félagsráðgjöf, teymi, grunnheilbrigðisþjónusta, forvarnir, sálfélagsleg vandkvæði. According to Icelandic law the primary health care centres should be the first point of contact for individuals seeking health care. In Iceland there are 76 primary ...