Sætaskipun á Alþingi

Fræðigreinar Tæp hundrað ár eru liðin síðan samþykkt var á Alþingi að þingmönnum skyldi skipað til sætis með drætti við upphaf hvers þings. Sú skipan þekkist ekki nú meðal annarra þjóðþinga. Ekki hefur legið fyrir hvers vegna sætadráttur var innleiddur á Alþingi, hvernig framkvæmd hans hefur verið,...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Þorsteinn Magnússon 1952-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/23380
Description
Summary:Fræðigreinar Tæp hundrað ár eru liðin síðan samþykkt var á Alþingi að þingmönnum skyldi skipað til sætis með drætti við upphaf hvers þings. Sú skipan þekkist ekki nú meðal annarra þjóðþinga. Ekki hefur legið fyrir hvers vegna sætadráttur var innleiddur á Alþingi, hvernig framkvæmd hans hefur verið, hver hafa verið viðhorf þingmanna til sætadráttar eða hvort þetta fyrirkomulag hafi haft einhver áhrif á samskipti þingmanna og starfsemi Alþingis. Í þessari grein eru birtar niðurstöður fyrstu rannsóknar á þessu efni hérlendis. Jafnframt er sætaskipun Alþingis sett í alþjóðlegt samhengi, en meginreglan um heim allan er að þingmenn sitja saman í flokkahópum. Niðurstöður rannsóknarinnar eru m.a. þær að mestar líkur eru á því að fyrirmyndin að sætadrætti sé sótt til fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, en þar tíðkaðist sætadráttur á árunum 1845- 1913. Þá leiðir rannsóknin í ljós að það liðu rúmlega 40 ár þar til sætadráttur festist að fullu í sessi á Alþingi. Í efri deild var á flestum þingum fram til 1959 fallið frá sætadrætti og virðast þingmenn þá einkum hafa setið eftir flokkum. Í neðri deild var algengt að ýmsir þingmenn skiptu á sætum að loknum sætadrætti og þar var líka um tíma uppi viðleitni til að koma á sætaskipun eftir flokkun en hún fékk ekki hljómgrunn. Síðan 1959 hefur ekki verið neinn ágreiningur um sætadrátt. Almennt virðast alþingismenn þeirrar skoðunar að sætaskipun Alþingis hafi jákvæð áhrif á samskipti þingmanna, sé jákvætt mótvægi við skiptingu þingheims í stjórnarliða og stjórnarandstæðinga og auk þess sé sætadráttur sanngjörn leið til að skipa mönnum til sætis. Reynslan af sætadrætti á Alþingi er því vísbending um að það geti skipt máli fyrir þingmenn hvernig sætaskipun er háttað. Almost a century has passed since Althingi, the Parliament of Iceland, introduced, in 1916, the method of allocating seats to Members by drawing lots at the start of each session. This arrangement is not customary in any other national parliament in the world. It has never been established why this particular method of ...