Virðingarsess leikskólabarna : þekking á barnaefni, kynjun og lagskipting í tveimur leikskólum

Efnisorð höfundar: virðingarsess – barnaefni – jafningjahópur – kynjun – félagsleg staða – leikskóli Markmið rannsóknar þeirrar sem hér er greint frá er að varpa ljósi á hvernig mismunandi þekking leikskólabarna á barnaefni getur tengst kyni, uppruna og félagslegri stöðu þeirra í leikskóla. Spurt va...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Þórdís Þórðardóttir 1951-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/23364
Description
Summary:Efnisorð höfundar: virðingarsess – barnaefni – jafningjahópur – kynjun – félagsleg staða – leikskóli Markmið rannsóknar þeirrar sem hér er greint frá er að varpa ljósi á hvernig mismunandi þekking leikskólabarna á barnaefni getur tengst kyni, uppruna og félagslegri stöðu þeirra í leikskóla. Spurt var: Þekking á hvers konar barnaefni er líklegust til að skapa fjögurra til fimm ára börnum virðingarsess í leikskóla? Athugað var hvernig þekking fjórtán barna á því aldursbili í tveimur leikskólum í Reykjavík á barnabókum, mynddiskum, sjónvarpsefni og tölvuleikjum birtist í frjálsum leik og skapandi starfi. Virðingarsessinn var notaður sem mælitæki á félagslega stöðu barnanna og mældur út frá viðbrögðum jafningjahópsins við tilvísunum í barnaefni eftir því hvernig jafningjahópurinn staðfesti tilvísanir í barnaefnið, hafnaði þeim eða hundsaði þær. Mat kennara og svör foreldra við spurningalista um notkun barnaefnis á heimilum voru notuð til þess að setja þekkingu barnanna í víðara félags- og kenningalegt samhengi. Niðurstöður sýna hvernig þekking á barnaefni birtist í leikjum og hvernig hún var staðfest, hún hundsuð eða henni hafnað af jafningjahópnum. Þær sýna jafnframt að mat kennaranna og lýsingar foreldranna á notkun barnaefnis á heimilum voru í samræmi við það sem birtist í leikjunum. Þekking á ofurhetjum og tölvum skilaði drengjum hæsta virðingarsessi í leikskólunum. Þekking telpna á ævintýraefni sem inniheldur bæði spennu og tengsl skilaði einnig háum virðingarsessi þótt þekking telpnanna væri ekki staðfest jafn oft og þekking drengjanna. Börnin sem hlutu hæsta sessinn vísuðu oftar í barnaefni en hin börnin, voru í hópi elstu barnanna á deildunum og eiga háskólamenntaða foreldra. Börnin sem fylgdu fast á eftir þeim, töldust hafa öðlast meðalháan virðingarsess. Þessi börn höfðu almennt góða þekkingu á barnaefni en síðri þekkingu á tölvum og ofurhetjum en börn sem hæsta sessinn skipuðu. Foreldrar þeirra eru ýmist með stúdentspróf eða iðnmenntun. Börn sem nutu lítillar virðingar í jafningjahópnum notuðu sjaldan ...