Viðbrögð Rauða krossins á Íslandi í kjölfar efnahagskreppu árið 2008

Rauði krossinn er fjöldahreyfing sem hefur víðtæka reynslu af að aðstoða þolendur náttúrulegra hamfara. Á Íslandi var litið á efnahagskreppuna sem hamfarir af mannavöldum og brugðist var við líkt og um hamfarir væri að ræða. Tilgangur þessarar rannsóknar sem er tilviksrannsókn, var að fá skýrari myn...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Berglind Karitas Þórsteinsdóttir 1966-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/23339
Description
Summary:Rauði krossinn er fjöldahreyfing sem hefur víðtæka reynslu af að aðstoða þolendur náttúrulegra hamfara. Á Íslandi var litið á efnahagskreppuna sem hamfarir af mannavöldum og brugðist var við líkt og um hamfarir væri að ræða. Tilgangur þessarar rannsóknar sem er tilviksrannsókn, var að fá skýrari mynd af viðbrögðum Rauða krossins á Íslandi í kjölfar efnahagskreppu árið 2008. Verkefnið byggist á eigindlegum rannsóknaraðferðum þar sem viðtöl voru tekin við þrjá einstaklinga sem voru þjónustunotendur og sjálfboðaliðar á þeim tíma, auk rýnihópaviðtals við starfsfólk félagsins. Markmiðið með þessari rannsókn var að kanna viðhorf, reynslu og gildismat starfsfólks og sjálfboðaliða Rauða krossins til viðfangsefnisins. Helstu niðurstöður voru þær að Rauði krossinn viðurkenndi vandann og fór strax í viðbragðsstöðu. Áhersla var á að styðja atvinnuleitendur til að sporna gegn neikvæðum félagslegum og heilsufarslegum afleiðingum sem fylgja oft langvarandi atvinnuleysi. Einnig var áhersla á þá sem stóðu höllum fæti vegna stöðu sinnar í samfélaginu. Auk margvíslegra aðgerða í formi stuðnings og þjónustu eftir að kreppan hélt innreið sína í landið, kom í ljós að fyrir efnahagshrunið 2008, hafði félagið boðað til málþings til að ræða greiðsluerfiðleika heimilanna og alvarleika málsins. Samstarf var við ríki, sveitarfélög, önnur samtök og stofnanir og viðmælendur voru sammála um samfélagslegt mikilvægi aðgerða Rauða krossins. Þjónustunotendur töldu sérstaklega mikilvægt að hafa fengið tækifæri til þess að hafa hlutverk og hjálpa öðrum á sama tíma. Samvinna starfsmanna og sjálfboðaliða þótti takast vel til. Heyra mátti á viðmælendum að velvilji var til Rauða krossins í samfélaginu og sá mikli kraftur mannauðs sem einkennir félagið var það sem stóð upp úr í hugum flestra. Sú þekking og reynsla sem skapaðist er talin nýtast vel í öðrum verkefnum Rauða krossins. The Red Cross is an international humanitarian movement and has extensive experience in assisting victims of natural disasters. The recession in Iceland was considered a ...