Væri áskrift á skömmtun á vítamín- og bætiefnum sérsniðin að þörfum hvers og eins, ásamt ráðgjöf og eftirfylgni fýsilegur kostur að bjóða neytendum?

Tilgangur þessarar rannsóknar er að kanna fýsileika viðskiptahugmyndar Lyfjavers og hvort hefja eigi áskriftarþjónustu á skömmtun vítamína og bætiefna fyrir núverandi og hugsanlega framtíðarviðskiptavini Lyfjavers. Fýsileikakönnun var lögð fram fyrir viðskiptavini Lyfjavers/Heilsuvers í lok febrúar...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ingibjörg Kolbeinsdóttir 1967-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/23261
Description
Summary:Tilgangur þessarar rannsóknar er að kanna fýsileika viðskiptahugmyndar Lyfjavers og hvort hefja eigi áskriftarþjónustu á skömmtun vítamína og bætiefna fyrir núverandi og hugsanlega framtíðarviðskiptavini Lyfjavers. Fýsileikakönnun var lögð fram fyrir viðskiptavini Lyfjavers/Heilsuvers í lok febrúar 2015 og varði könnunin í alls 14 daga. Markmið könnunarinnar var að kanna hvort markaður sé til staðar á sérsniðinni faglegri þjónustu á ráðgjöf og sölu á vítamínum og bætiefnum í skömmtun, sem hægt væri að bjóða viðskiptavinum í Lyfjaveri/Heilsuvers, hvort sem það er á staðnum eða í gegnum heimasíðu þeirra. Vítamín- og bætiefnamarkaðinn var skoðaður, hverjir hugsanlegir samkeppnisaðilar gætu verið og eins var skoðað stuttlega hver virkni Íslendinga er á netverslun í dag. Markaðurinn og samkeppni voru greind og leiðir Lyfjavers til að skapa samkeppnishæfni og forskot. Rannsóknaraðferðin sem notuð var við vinnslu þessarar rannsóknar var megindleg rannsókn í formi spurningarkönnunar sem lögð var út fyrir viðskiptavini Lyfjavers. Spurningakönnunin var lögð fram fyrir viðskiptavini í apóteki Lyfjavers og í verslun Heilsuvers við Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík. Enn fremur voru notaðar munnlega heimildir í formi hálfopins djúpviðtals við þá Aðalstein Ingvarsson, framkvæmdarstjóra Lyfjavers og Magnús Steinþórsson, rekstrar- og gæðastjóri Lyfjavers. Helstu forsendur könnunarinnar voru fléttaðar saman við fræðilegar greiningar verkefnisins en það var gert til að greina hvort um fýsilegan kost sé fyrir Lyfjaver að framkvæma þessa viðskiptahugmynd. The main purpose of this empirical research is to explore the feasibility of a business idea of Lyfjaver; whether they should start a subscription on service on multidose for vitamins and supplements for present and possibly future customers of Lyfjaver. Feasibility study was done with customers of Lyfjaver/Heilsuver in February of 2015 and lasted 14 days. The objective of this research was to explore whether there is a market out there for custom-made professional service ...