„Tæknin er komin til að vera“ : upplýsingatækni og miðlun í viðskipta- og hagfræðigreinum framhaldsskóla á Íslandi

Mikil og hröð þróun hefur átt sér stað í heimi tækninnar undanfarna tvo áratugi sem krefst þess að einstaklingar og samfélagið þurfa sífellt að aðlaga sig að breyttum aðstæðum. Með þessari tækniþróun og nýjum samskiptamáta hafa starfs- og kennsluhættir í íslenskum framhaldsskólum tekið breytingum og...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ingunn Helgadóttir 1978-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/23230
Description
Summary:Mikil og hröð þróun hefur átt sér stað í heimi tækninnar undanfarna tvo áratugi sem krefst þess að einstaklingar og samfélagið þurfa sífellt að aðlaga sig að breyttum aðstæðum. Með þessari tækniþróun og nýjum samskiptamáta hafa starfs- og kennsluhættir í íslenskum framhaldsskólum tekið breytingum og möguleikar á fjölbreytni í kennsluaðferðum aukist. Markmið þessarar rannsóknar var að fá innsýn í það á hvaða hátt upplýsingatækni og miðlun (UTM) er notuð í viðskipta- og hagfræðigreinum framhaldsskóla á Íslandi. Einnig var kannað hvar kennarar þessara greina hafa öðlast sína þekkingu á upplýsingatækni og miðlun og viðhorf þeirra til nýtingu UTM í námi og kennslu viðskipta- og hagfræðigreina. Snið rannsóknarinnar var lýsandi en gögnum var safnað með rafrænni spurningalistakönnun. Gagnaöflun fór fram sumarið 2015 og var boð um þátttöku sent til allra kennara sem skráðir eru í Samtök kennara í viðskipta- og hagfræðigreinum (SKVOH). Tuttugu og fjögur gild svör fengust (um 39% þátttaka) frá 12 konum og 12 körlum. Niðurstöður eru meðal annars þær að samþætting UTM er nokkuð mikil. Telja þátttakendur að tækniþekking þeirra sé almennt góð og viðhorf flestra til UTM og kennslufræðilegs gildis UTM er frekar jákvætt. Að mati þátttakenda nota nemendur helst töflureikna, PowerPoint, leitarvélar og ritvinnsluforrit en einnig voru önnur forrit nefnd svo sem bókhaldsforrit. Niðurstöður benda til nokkuð markvissrar nýtingar UTM í kennslu. Kennarar eru flestir allvel staddir hvað varðar fagþekkingu, kennslufræði og tæknikunnáttu og virðast geta tvinnað þessa þekkingu saman og hafa trú á eigin getu til að takast á við tæknilegar áskoranir. Þátttakendur telja að með notkun UTM í náminu séu nemendur betur undirbúnir fyrir frekara nám og lífið á atvinnumarkaðinum. Flestir hafa góða reynslu af notkun UTM í kennslu og þykir auðvelt að nota tæknina. Þeir telja einnig að kennslan sé auðveldari með tilkomu hennar. Rúmlega helmingur telur sig hafa greiðan aðgang að góðum tækjabúnaði sem nýtist vel í kennslu. Mikill meirihluti sagði að ekki ...