Snjallar bjargir : gagnleg tækni fyrir einstaklinga með dyslexíu í tungumálanámi

Dyslexía Fjölskynjunarnám Fartækni Tungumálanám Vefsíða Þessu lokaverkefni til M.Ed.–prófs á Menntavísindasviði Háskóla Íslands er skipt í tvo hluta. 1.) Greinargerð og 2.) Vefsíða. Fyrri hlutinn er fræðileg umfjöllun þar sem rýnt er í fyrirliggjandi rannsóknir á dyslexíu, fjölskynjunar-aðferðum (e....

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Daði Guðjónsson 1981-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/23222
Description
Summary:Dyslexía Fjölskynjunarnám Fartækni Tungumálanám Vefsíða Þessu lokaverkefni til M.Ed.–prófs á Menntavísindasviði Háskóla Íslands er skipt í tvo hluta. 1.) Greinargerð og 2.) Vefsíða. Fyrri hlutinn er fræðileg umfjöllun þar sem rýnt er í fyrirliggjandi rannsóknir á dyslexíu, fjölskynjunar-aðferðum (e. multi-sensory approach) í erlendu tungumálanámi og hvernig ný tækni getur þar komið að gagni. Seinni hlutinn er vefsíðan (www.snjallarbjargir.is) sem byggð er á afrakstri heimildarrannsóknarinnar þar sem bent er á gagnlegar kennslunálganir og forrit í tungumálanámi. Meginmarkmið rannsóknarinnar er að stuðla að frekari fjölskynjunarnálgun í erlendu tungumálanámi og þá einkum með aðstoð nýrrar tækni þar sem þróunin er ör og mikilvægt að kennarar reyni að afla sér þekkingar og færni til að geta leiðbeint nemendum sínum í vali og notkun hennar. Vonandi reynist afrakstur þessa lokaverkefnis skref í rétta átt. Niðurstöður rannsóknarvinnunnar benda til þess að nemendur með dyslexíu mæta ýmsum flóknum hindrunum í erlendu tungumálanámi og þurfa á fjölbreyttum námsaðferðum að halda. Til þess að mæta ólíkum þörfum nemenda þurfa kennarar að tileinka sér sveigjanlegar kennsluaðferðir þar sem þjálfaðir eru fleiri færniþættir með fjölskynjunarnálgun og geta slíkar aðferðir gagnast öllum nemendum og þá sérstaklega þeim sem hafa átt erfitt með lestur en eru samt ekki greindir með dyslexíu. Ný tækni og snjallforrit (e. apps) geta reynst mikilvægar bjargir í erlendu tungumálnámi. Þau eru þó ekki komin til að leysa af hólmi hinar hefðbundnu kennsluaðferðir. Heldur má nota tæknina til þess að auka fjölbreytileikann í námi og sem stuðningstæki til að æfa, endurtaka, auka námshvata, nýta styrkleika og mæta þörfum nemenda sem eru með dyslexíu. Fagmennska kennara er því nátengd tækniþróun og mikilvægt að hún sé samtvinnuð en ekki aðskilin. This final project for M.Ed.-degree at the University of Iceland is divided into two parts. 1.) Report and 2.) webpage. The first part is a theoretical discussion and research into existing studies on ...