Afkastageta sjávarfalla túrbínu V-5

Þetta er verkefni er ætlað öllum þeim sem hafa áhuga á því að kanna möguleika sjávarfalla sem orkugjafa. Á undanförnum áratug hafa rannsóknir og tækniþróun sem snýr að mismunandi gerð sjávarfalla, auk hönnunar túrbína og virkjana aukist umtalsvert. Sjávarföllin innihalda gífurlega hreyfiorku sem hæg...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Valgeir Páll Björnsson 1991-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/23129
Description
Summary:Þetta er verkefni er ætlað öllum þeim sem hafa áhuga á því að kanna möguleika sjávarfalla sem orkugjafa. Á undanförnum áratug hafa rannsóknir og tækniþróun sem snýr að mismunandi gerð sjávarfalla, auk hönnunar túrbína og virkjana aukist umtalsvert. Sjávarföllin innihalda gífurlega hreyfiorku sem hægt er að fanga og umbreyta í rafmagn. Margvíslegar gerðir eru til af sjávarfalla túrbínum og er þróun þeirra hvergi nærri lokið. Markmið rannsóknarinnar var að skoða nýtni og afkastagetu sjávarfallatúrbínu af gerð V-5. Valorka er nýsköpunarfyrirtæki sem hefur sérhæft sig í þróun sjávarfalla túbína sem nú þegar hafa skilað athyglisverðum árangri. Verkefnið var því unnið í samstarfi við fyrirtækið. Meginþungi rannsóknarinnar var framkvæmdur í straumkeri í rannsóknaraðstöðu Veiðarfæraþjónustunnar ehf sem er staðsett í Grindavík. Mælingar fólust í því að skoða samband vægis og snúningshraða. Þessar stærðir voru settar upp sem víddarlausar stærðir. Víddarlausu stærðirnar voru fundar út með formúlum sem leiddar voru út með Buckingham Pi aðferðinni. Þessar einingalausu stærðir voru þá nýttar í það að sjá samband og hegðun vægis og snúning túrbínunar V-5. Reiknað var síðan út mestu möguleg afköst og nýtni túrbínunar við þetta ákveðna tilfelli. Nýtni túrbínunar var um 0,091 sem er um 9-10 % nýtni. Nýtni túrbínunnar er stærsti hlekkurinn þegar kemur að því hve mikil afköst túrbínan getur framkallað. Því hærri nýtni því hærri afköst. Í heild sinni fór þessi rannsókn vel fram. Túrbínan er enn í þróunar stigi en svo virðist vera að hún sé að ná einhverri nýtni og afköstum.