Þróun afkomuspálíkans fyrir Brúarjökul

Stór hluti rennslis í íslenskum ám stafar af jökulleysingu. Áreiðanleg spá fyrir árstíðarbundinni leysingu jökla veitir verðmætar upplýsingar til stýringar og reksturs vatnsauðlindarinnar. Í þessu verkefni er þróað spáforrit fyrir árstíðarbundinni jökulleysingu á Brúarjökli. Stærsti hluti vatnasviðs...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Darri Eyþórsson 1985-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:English
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/23050
Description
Summary:Stór hluti rennslis í íslenskum ám stafar af jökulleysingu. Áreiðanleg spá fyrir árstíðarbundinni leysingu jökla veitir verðmætar upplýsingar til stýringar og reksturs vatnsauðlindarinnar. Í þessu verkefni er þróað spáforrit fyrir árstíðarbundinni jökulleysingu á Brúarjökli. Stærsti hluti vatnasviðs Brúarjökuls hefur verið virkjað með Kárahnjúkavirkjun og liggja í kjölfarið fyrir mikið magn rannsókna á veður- og loftslagsaðstæðum á vatnasviðinu. Í verkefninu eru spábreytur fundnar með einfaldri línulegri fylgnigreiningu. Valdar breytur eru notaðar til að skilgreina mengi allra mögulegra línulegra leysingarlíkana með fjórar eða færri inntaksbreytur. Spágildi sumarleysingar er fundið með því að reikna vigtað meðaltal spágilda spárúmsins sem er til skoðunar. Aðferðin er bestuð með því að velja hlutmengi líkana sem sýna besta forspárgetu. Þrjú vigtarföll eru prófuð og borin saman og það sem sýnir besta forspárgetu valið. Spáalgrím er þróað til að spá fyrir jökulleysingu árin 2012-15 kvarðað með gögnum frá 2001-2011. Niðurstöður sýna að forritið spáir ásættanlega fyrir sumarleysingu með þeim aðferðum sem voru þróaðar. Spá fyrir árið 2015 spáir fyrir leysingu um eða fyrir neðan fyrsta fjórðungsmark langtíma leysingaraðar jökulsins. Spáin sýnir einnig umtalsvert meiri breytileika spágilda og víðari skekjumörk en fyrri ár. Glacial melt water constitutes a significant portion of accumulated annual streamflow in Iceland’s many glacial rivers. Forecasting of seasonal ablation provides valuable information for optimal management of the hydrological resource. In the present project an ablation forecasting model was developed for the seasonal ablation of Brúarjökull, the largest outlet glacier of the Vatnajökull ice cap, SE Iceland. The greater part of the Brúarjökull catchment has been exploited for hydropower development in the Kárahnjúkar Hydro Power Project (HPP). As a result extended prior research on meteorological and climatological conditions is present. In the project the most relevant predictor variables are ...