„Það fer eftir kennurum“ : nemendur af erlendum uppruna á mótum grunn- og framhaldsskóla á Íslandi og í Svíþjóð

Í þessari rannsókn er athugað með hvaða hætti komið er til móts við fjölbreyttar þarfir ólíkra nemenda í elstu bekkjum grunnskóla og á fyrstu árum framhaldsskóla á Íslandi og í Svíþjóð. Einkum er sjónum beint að innflytjendum sem í báðum löndum hafa átt á brattann að sækja innan skólakerfisins og br...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jóhanna Gísladóttir 1956-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/23000
Description
Summary:Í þessari rannsókn er athugað með hvaða hætti komið er til móts við fjölbreyttar þarfir ólíkra nemenda í elstu bekkjum grunnskóla og á fyrstu árum framhaldsskóla á Íslandi og í Svíþjóð. Einkum er sjónum beint að innflytjendum sem í báðum löndum hafa átt á brattann að sækja innan skólakerfisins og brottfall úr framhaldsnámi hefur verið mikið meðal þess hóps. Skoðaðir voru tveir grunnskólar og tveir framhaldsskólar í hvoru landi og tekin hálfopin viðtöl við skólastjórnendur og kennara skólanna auk þess sem fylgst var með kennslustundum. Í ljósi hugmynda og fræða um fjölmenningarlega menntun og kennslu eru kennsluhættir skoðaðir og rýnt í stefnu skólanna sem við sögu koma. Þá eru hafðar til hliðsjónar kenningar um stofnanir og skólastjórnun sem og kenningar Pierre Bourdieu um félagslega þætti. Einnig eru skoðuð lög um skóla í báðum löndum og borin saman, einkum með tilliti til innflytjenda og réttinda þeirra til menntunar. Eftirfarandi rannsóknarspurning var lögð til grundvallar rannsókninni: Hvernig endurspeglast fjölbreytni nemenda í starfsháttum grunn- og framhaldsskóla á Íslandi og í Svíþjóð? Í framhaldi af rannsóknarspurningunni spyr ég eftirfarandi undirspurninga: Hvernig er tekið á móti innflytjendanemendum í framhaldsskólanum og er sýnilegur munur á námsumhverfi og kennsluháttum grunnskólans og framhaldsskólans í löndunum tveimur? Niðurstöður leiða í ljós mismunandi kennsluhætti eftir kennurum en sýna einnig fram á mikilvægi ákveðinnar stefnu skólanna og eftirfylgni stjórnenda. Reflections on Teaching Methodologies for Multi-cultural students in Iceland and Sweden. This research considers in which ways the needs of multi-cultural students in the upper levels in primary school and lower levels of upper-secondary schools in Iceland and Sweden are met. The lens is directed at immigrants from both countries who have struggled within the school system as drop-out rates from further education among this group is highest. The research entails two primary schools and two upper-secondary schools from each country. ...