„Ég vil læra meiri íslenska“ : þátttökuathugun á starfi alþjóðanámsvers í grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu

Tilgangur þessarar rannsóknar er að kanna hvernig kennsla fyrir nemendur af erlendum uppruna fer fram í alþjóðanámsveri í Álfhólsskóla í Kópavogi. Markmið rannsóknarinnar er tvíþætt, (1) að kanna viðhorf kennara og annars starfsfólks til kennslu barna af erlendum uppruna og (2) skoða hvernig starfin...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Halla Jónsdóttir 1971-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/22991
Description
Summary:Tilgangur þessarar rannsóknar er að kanna hvernig kennsla fyrir nemendur af erlendum uppruna fer fram í alþjóðanámsveri í Álfhólsskóla í Kópavogi. Markmið rannsóknarinnar er tvíþætt, (1) að kanna viðhorf kennara og annars starfsfólks til kennslu barna af erlendum uppruna og (2) skoða hvernig starfinu í alþjóðanámsveri er háttað. Megináhersla er lögð á eftirfarandi þætti: Kennsluaðferðir, framkvæmd íslenskukennslu og viðhorf kennara til kennslu barnanna í þeirra eigin móðurmáli. Rannsóknin fór fram skólaárið 2014-2015. Eigindlegum rannsóknar-aðferðum var beitt við gagnaöflun, þ.e. vettvangsathugun þar sem ég fylgdist með og tók þátt í starfi alþjóðanámsversins; einnig tók ég hálfopin viðtöl við sex viðmælendur, þ.e. deildarstjóra sérúrræða við skólann, fjóra kennara og einn stuðningsfulltrúa, sem starfa við alþjóðanámsverið. Viðtalsramminn, sem notaður var, miðaði að því að afla vitneskju um starf deildarinnar og þá kennslu sem þar fer fram. Áhersla var á að draga fram sjónarhorn viðmælenda gagnvart starfseminni með það að leiðarljósi að fá fram svör við rannsóknarspurningum. Helstu niðurstöður eru þær að allir viðmælendur eru á sama máli um mikilvægi þess að góð íslenskukennsla sé grunnur að árangursríku námi erlendra nemenda sem og að gera þá að virkum þegnum í skóla-samfélaginu. Leggja þeir allir aðaláherslu á að nemendur læri hljóð stafanna og réttan framburð sem fyrst. Segja viðmælendur að lestrarkennsla sé grunnur að öðru námi og því eru þeir allir sammála um að byggja þurfi á henni. Leggja þeir sig alla fram við að nemendur af erlendum uppruna nái tökum á lestrinum sem fyrst. Telja kennarar að lestrarkennsla sé næg í deildinni þó svo að auðvitað vilji þeir alltaf meira af henni en til þess þyrfti deildin að hafa fleiri kennara eða stuðning annars staðar frá. Mátti sjá á niðurstöðum varðandi móðurmál nemenda að kennarar bera mikla virðingu fyrir móðurmálinu og mikilvægi þess að því sé viðhaldið en það sé jafnframt á ábyrgð foreldra að svo sé. "I want learn more icelandic" Observation study in an ...