Kynjaskiptur vinnumarkaður: Þróun og staða á Íslandi

Meginmarkmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á stöðu kynjanna á íslenskum vinnumarkaði í dag. Til þess að átta sig á stöðunni í dag verður farið yfir þróun vinnumarkaðarins hér á landi. Hugtökin lárétt og lóðrétt kynjaskipting fjalla um mismunandi birtingamynd kynjaskiptingar á vinnumarkaði. Fa...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ómar Jóhannsson 1981-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/22756
Description
Summary:Meginmarkmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á stöðu kynjanna á íslenskum vinnumarkaði í dag. Til þess að átta sig á stöðunni í dag verður farið yfir þróun vinnumarkaðarins hér á landi. Hugtökin lárétt og lóðrétt kynjaskipting fjalla um mismunandi birtingamynd kynjaskiptingar á vinnumarkaði. Farið verður yfir erlendar rannsóknir á láréttri og lóðréttri kynjaskiptingu og þær bornar saman við íslenskan vinnumarkað. Þá verður reynt að varpa ljósi á helstu niðurstöður út frá átaka- og femínískum kenningum svo sem sjónarmiðs kenningum og kenningum um feðraveldið. Það kemur í ljós að þrátt fyrir að á Íslandi ríki hvað mest jafnrétti milli kynjanna í heiminum er vinnumarkaðurinn mjög kynjaskiptur. Það á bæði við út frá lóðréttri og láréttri kynjaskiptingu. Þróunin hér á landi hefur verið í þá átt að hlutur kvenna er fremur að aukast í störfum sem hingað til hafa verið svokölluð karlastörf, fremur en að karlar séu að fara í hefðbundnari kvennastörf. Hlutfall kvenna hefur aukist í áhrifastöðum landsins svo sem í stjórnum fyrirtækja, á alþingi og í sveitarstjórnum. Þróunin er því í átt að auknu jafnrétti kynjanna á vinnumarkaðnum hér á landi en inngrip stjórnvalda, eins og lög um fæðingarorlof og kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja, eiga sinn þátt í því.