Moskumálið: Framgangur umsóknar um moskubyggingu í Reykjavík. Almenningur og stjórnvöld

Rannsókn þessi beinist að þeirri meðferð sem úthlutun lóðar til Félags múslíma á Íslandi (FMÍ) til byggingar mosku fékk innan stjórnkerfis Reykjavíkurborgar á árunum 1999-2013. Kannað er meðal annars hvort að FMÍ hafi hlotið annars konar meðferð þegar kom að úthlutunarlögum, mannréttindum, trúfrelsi...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Gréta Mar Jósepsdóttir 1985-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/22727
Description
Summary:Rannsókn þessi beinist að þeirri meðferð sem úthlutun lóðar til Félags múslíma á Íslandi (FMÍ) til byggingar mosku fékk innan stjórnkerfis Reykjavíkurborgar á árunum 1999-2013. Kannað er meðal annars hvort að FMÍ hafi hlotið annars konar meðferð þegar kom að úthlutunarlögum, mannréttindum, trúfrelsi og svo framvegis ef miðað er við aðrar sambærilegar umsóknir með því að greina hver grunnorsök þess var að umsókn þeirra um lóð undir mosku tók hátt í fjórtán ár. Þær spurningar sem koma fyrir í rannsókninni beinast annars vegar að lóðarúthlutuninni sjálfri og meðhöndluninni sem hún fékk innan Reykjavíkurborgar og hins vegar hvað olli því að málið varð að einu aðalkosningarmálinu í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík 2014, eða í hinu svokallaða moskumáli. Niðurstaðan er sú að skipulags- og byggingarsvið (nú umhverfis- og skipulagssvið) gerði það sem til þurfti til að finna lausn á málinu. Það helsta sem virðist hafa staðið í vegi fyrir að úthlutun ætti sér stað fyrr en ella voru kröfur FMÍ, bæði hvað varðar staðarval og stærðarkröfur lóðar, skortur Reykjavíkurborgar á lóðum og síðast en ekki síst pólitísk umfjöllun um málið í umhverfis- og skipulagsráði. Allir þessir þættir ásamt öðrum gerðu að verkum að málið dróst á langinn. Efnisorð: Múslímar, Reykjavíkurborg, frjálslyndi og íhaldssemi, moska, moskumálið, menningarstríð. This study is intended to draw attention to the issue on plot allocation to Muslim Association in Iceland (FMÍ). The study focuses on the treatment that the allocation of mosque in Reykjavík received within Reykjavíkurborg of the period 1999-2013. It was examined why the treatment Muslims had to receive was subdued when it came to the allocation of law, human rights, freedom and so on, by analyzing basic cause of why the application of land for the construction of mosque took almost fourteen years. Interestingly, other religious organizations that attended the premises after Muslims were given out plot long before Muslims. The questions that appear in the study, focusing on the one hand plot ...