Hvernig verður maður til? Greining á skáldsögunni Punktur punktur komma strik í ljósi kenninga Jean Piaget

Skáldsagan Punktur punktur komma strik eftir Pétur Gunnarsson kom fyrst út árið 1976 og náði óvenjumiklum vinsældum meðal lesenda hér á landi. Í sögunni er fylgst með dreng sem elst upp í Reykjavík á eftirstríðsárunum frá fæðingadegi hans þar til hann er orðinn um það bil 12 ára. Skáldsagan er ekki...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Soparaite, Roberta, 1987-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/22635
Description
Summary:Skáldsagan Punktur punktur komma strik eftir Pétur Gunnarsson kom fyrst út árið 1976 og náði óvenjumiklum vinsældum meðal lesenda hér á landi. Í sögunni er fylgst með dreng sem elst upp í Reykjavík á eftirstríðsárunum frá fæðingadegi hans þar til hann er orðinn um það bil 12 ára. Skáldsagan er ekki einungis skondin lýsing á þessu tímabili Íslandssögunnar heldur kemur hún sífellt á óvart með trúverðugum persónulýsingum þar sem höfundur sýnir lesandanum heiminn frá sjónarhorni barnsins. Í sjálfsævisögulegri bók sinni Veraldasaga mín lætur Pétur Gunnarsson í ljós hrifningu á kenningu svissneska sálfræðingsins Jean Piaget sem fjallar meðal annars um vitsmunaþroska barna og sérkenni á hugsun þeirra. Í þessari ritgerð er gengið út frá því að tengsl séu á milli kenningar Piaget og þess hvernig aðalpersónan í skáldsögunni er mynduð. Í fyrsta hluta ritgerðarinnar er rætt um tengsl milli sálfræði og bókmennta í heimsbókmenntum og íslenskum bókmenntum. Rök eru færð fyrir því að slík tengsl séu einnig sýnileg milli Punktur punktur komma strik og kenningar Jean Piaget. Í öðrum hluta ritgerðarinnar er kenning Piaget kynnt. Fjallað er um helstu atriði kenningarinnar um vitsmunaþroskastig, félagslegan þroska og siðferði barna. Í þriðja hluta ritgerðarinnar eru brot úr Punktur punktur komma strik skoðuð með hliðsjón af kenningu Piaget. Markmið þessa hluta er að finna vísbendingar um kenninguna í sögunni og að varpa nýju ljósi á aðalpersónu hennar.