Leigumarkaðurinn í Reykjavík: Skiptir miðlæg staðsetning máli?

Leigumarkaður með fasteignir í Reykjavík hefur ekki verið mjög öflugur undanfarna áratugi en það hefur verið að breytast síðustu ár og eftir bankahrun 2008 hefur orðið mikil aukning á fjölda þinglýstra leigusamninga. Margar rannsóknir hafa verið gerðar þar sem sýnt er fram á áhrif miðlægrar staðsetn...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hrólfur Júlíusson 1976-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/22621
Description
Summary:Leigumarkaður með fasteignir í Reykjavík hefur ekki verið mjög öflugur undanfarna áratugi en það hefur verið að breytast síðustu ár og eftir bankahrun 2008 hefur orðið mikil aukning á fjölda þinglýstra leigusamninga. Margar rannsóknir hafa verið gerðar þar sem sýnt er fram á áhrif miðlægrar staðsetningar á kaupverð fasteigna í Reykjavík. Með aukinni virkni á leigumarkaði vaknar sú spurning hvort að sömu áhrif séu til staðar fyrir leiguhúsnæði. Í ritgerðinni eru rannsökuð áhrif miðlægrar staðsetningar á fermetraverð útfrá upplýsingum um þinglýsta leigusamninga í fjölbýli í Reykjavík á árunum 2010 – 2015. Helstu niðurstöður eru að nálægð við miðbæ Reykjavíkur hefur greinileg áhrif til hækkunar á leiguverði. Áhrifin virðast að langmestu leyti bundin við svæðið vestan við Elliðaár en ekki er mælanleg lækkun fermetraverðs þegar farið er utar og er hið gagnstæða jafnvel satt. Einnig er sýnt fram á að verðáhrif miðlægrar staðsetningar á leiguverð eru töluvert minni heldur en áhrifin á kaupverð fasteigna og borgar það sig því frekar að leigja út íbúðir í langtímaleigu fjær miðbæ Reykjavíkur heldur en í hverfunum næst miðbæ.