Rökræðulýðræði verður stofnanalýðræði: Er hættulegt að færa vald til almennings? Athugasemdir við grein Vilhjálms Árnasonar "Valdið fært til fólksins?"

Fræðigrein Greinin er viðbrögð við skrifum Vilhjálms Árnasonar um lýðræði, einkum grein hans "Valdið fært til fólksins? Veikleikar og verkefni íslensks lýðræðis í aðdraganda og eftirmála hrunsins." Því er haldið fram að gagnrýni Vilhjálms á lýðræðistilraunir á Íslandi í kjölfar hrunsins 20...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jón Ólafsson 1964 (heimspekingur)
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/22398
Description
Summary:Fræðigrein Greinin er viðbrögð við skrifum Vilhjálms Árnasonar um lýðræði, einkum grein hans "Valdið fært til fólksins? Veikleikar og verkefni íslensks lýðræðis í aðdraganda og eftirmála hrunsins." Því er haldið fram að gagnrýni Vilhjálms á lýðræðistilraunir á Íslandi í kjölfar hrunsins 2008 tjái efasemdir um lýðræði og að það form lýðræðis sem Vilhjámur telur heppilegast feli í raun í sér áherslu á vandaða stjórnsýslu á kostnað lýðræðis. Fjallað er um pólitískar umræður, þátttöku og óháðan vettvang almannahagsmuna sem geti rúmað bæði rökræðulýðræði og sjálfstæða fjölmiðla. Því er haldið fram að erfitt sé eða ómögulegt að leggja mat á það utan frá að hve miklu leyti sjónarmið sérhagsmuna, kappræðu og pólitískra hrossakaupa ráða ferðinni á vettvangi stjórnmála. Almennir siðferðilegir mælikvarðar dugi því skammt til að meta stjórnmálaumræðu. Rök eru færð fyrir því að tilraunir á Íslandi með þjóðaratkvæðagreiðslur, þjóðfundi, stjórnlagaráð og fleira séu mikilvæg reynsla sem þurfi að draga lærdóma af frekar en að líta svo á gerð hafi verið alvarleg mistök í skipulagningu og framkvæmd þeirra eins og Vilhjámur heldur fram. Í lokin er bent á að því fari þó fjarri að efasemdum sé þar með eytt um beint lýðræði og að til þess að sýna fram á gildi þess þurfi að svara fullyrðingum efasemdamanna með meira sannfærandi hætti en gert hefur verið. The paper is a response to Vilhjálmur Árnason’s writings on democracy, in particular his paper "Power to the People? Weaknesses and challenges of Icelandic democracy in the wake and aftermath of the Crisis." It is argued that Árnason’s criticism of democratic experiments in Iceland after the economic crisis of 2008 imply doubts about democracy and that the form of democracy that Árnason favors in fact means that good governance is seen as more important than democracy. The paper discusses political deliberation, participation and an independent public sphere that can accommodate both deliberative democracy and independent media. It is maintained that it may be difficult or even ...