Þjónandi forysta og rannsóknir hér á landi

Fræðigrein Þjónandi forysta er hugmyndafræði sem varpar nýju ljósi á kenningar í stjórnunar- og leiðtogafræðum. Einstakar áherslur hennar eru þjónusta með siðfræði og ábyrgð sem grunnstoðir og hagsmuni heildar framar þrengri hagsmunum. Upphafsmaður hugmyndafræðinnar er Robert K. Greenleaf. Helstu ei...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Sigrún Gunnarsdóttir 1960-, Birna Gerður Jónsdóttir 1958-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/22382
Description
Summary:Fræðigrein Þjónandi forysta er hugmyndafræði sem varpar nýju ljósi á kenningar í stjórnunar- og leiðtogafræðum. Einstakar áherslur hennar eru þjónusta með siðfræði og ábyrgð sem grunnstoðir og hagsmuni heildar framar þrengri hagsmunum. Upphafsmaður hugmyndafræðinnar er Robert K. Greenleaf. Helstu einkenni þjónandi leiðtoga er einlægur áhugi á högum annarra, innri styrkur og framtíðarsýn. Rannsóknum um efnið hefur fjölgað undanfarin ár og sýna niðurstöður að hugmyndafræðin hefur jákvæð áhrif á samfélagslega ábyrgð fyrirtækja og árangur þeirra, líðan starfsfólks og traust í samskiptum. Samkvæmt niðurstöðum nýrra rannsókna á hugmyndafræðin ríkt erindi í íslensku samfélagi. Til að kanna þetta nánar voru gerðar átta kannanir á mismunandi vinnustöðum hér á landi á árunum 2008 – 2012. Viðhorf starfsfólks til þjónandi forystu næsta yfirmanns voru metin með nýju hollensku mælitæki, SLS. Starfsánægja var metin og könnuð tengsl hennar við mat starfsfólks á þjónandi forystu. Birtar eru helstu niðurstöður sem sýna að starfsfólk metur þjónandi forystu almennt all nokkra og mesta vægi fá þættirnir efling og ábyrgð í fari næsta yfirmanns. Starfsánægja var almennt mikil og var marktækt tengd þjónandi forystu og samræmist það erlendum niðurstöðum. Jákvæðar niðurstöður íslensku kannananna gefa fyrirheit um árangursríka stjórnunarhætti á vinnustöðum hér á landi en unnið er að frekari rýni og samanburði við erlendar niðurstöður. Servant leadership is a philosophy that sheds a new light on theories on management and leadership. Particular emphasis is on service as founded on ethics and accountability with focus on the greater good prior to narrow interests. The pioneer of the philosophy is Robert K. Greenleaf. The main characteristics of servant leadership are intrinsic interest in others, inner strength and foresight. Research on the topic has increased the past years and results show that the philosophy is positively linked to corporate social responsibility, profit as well as staff wellbeing and trust in relations. Recent ...