Fíkniefni, íslenskt samfélag og nýir kostir í stefnumótun

Fræðigrein Fíkniefnavandinn er af mörgum álitinn einn helsti vandi sem vestræn ríki glíma við í dag. Viðhorfsmælingar á Íslandi sýna að flestir telja neyslu fíkniefna alvarlegasta vandamál afbrota en samneyslu áfengis og fíkniefna mikilvægustu ástæðu þess að sumir leiðast út í afbrot. Neysla algenga...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Helgi Gunnlaugsson 1957-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/22381
Description
Summary:Fræðigrein Fíkniefnavandinn er af mörgum álitinn einn helsti vandi sem vestræn ríki glíma við í dag. Viðhorfsmælingar á Íslandi sýna að flestir telja neyslu fíkniefna alvarlegasta vandamál afbrota en samneyslu áfengis og fíkniefna mikilvægustu ástæðu þess að sumir leiðast út í afbrot. Neysla algengasta fíkniefnisins, kannabis, hefur reglulega verið mæld meðal grunnskólabarna hér á landi en neysla fullorðinna hefur minna verið könnuð. Lítið er því vitað um hvernig neysla sem hefst í grunnskóla þróast þegar kemur fram á fullorðinsár, hvort hún aukist, standi í stað eða minnki. Ekki er heldur mikið vitað um félagsleg einkenni þeirra sem misnota hörð fíkniefni á Íslandi. Í greininni er útbreiðsla kannabis skoðuð eins og hún er meðal fullorðinna á Íslandi. Hversu margir hafa prófað efnið á lífsleiðinni, hversu margir hafa neytt þess oftar en tíu sinnum og hversu margir á síðustu sex mánuðum fyrir mælinguna? Staða sprautufíkla er sérstaklega greind og hvaða félagslegu áhættuþættir koma þar við sögu. Mat almennings á alvarleika brota er kannað og ástæður þess að fólk leiðist út í afbrot eru einnig kannaðar. Helstu niðurstöður eru þær að heildarfjöldi þeirra sem einhvern tíma hefur prófað kannabis hefur aukist á síðustu árum en fjöldi þeirra sem nota efnið reglulega er óverulegur. Sprautufíklar standa margir hverjir höllum fæti í samfélaginu og eiga við margvíslegan vanda að stríða. Brýnt er að stefnumótun í fíkniefnamálum taki mið af ólíkum hliðum neyslunnar í samfélaginu um leið og úrræði fyrir langt leidda fíkla verði efld í félags- og heilbrigðiskerfinu. The drug problem is believed by many to be one of the most serious social problems in western societies. Public attitude surveys show that most believe drug use to be the most serious crime problem in Iceland and alcohol and drug use the most important cause why some people end up in crime. Cannabis use, the most frequent drug, has regularly been measured among students but studies among adults have been examined to a lesser extent. As a result, not much is ...