Bestu skinn : þróun loðfelda í vestrænu samfélagi

Í þessari ritgerð verður skoðað hvernig loðfeldir verða eftirsóknarverðir í Vestrænu samfélagi í byrjun 20. aldar og þróun þeirra innan tískugeirans. Í upphafi eru þjóðflokkar Eskimóa og Chukchi frumbyggjanna skoðaðir en báðir þjóðflokkarnir koma frá norðurhveli jarðar. Í gegnum tíðina hafa þessir þ...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ásrún Ágústsdóttir 1989-
Other Authors: Listaháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/22201
Description
Summary:Í þessari ritgerð verður skoðað hvernig loðfeldir verða eftirsóknarverðir í Vestrænu samfélagi í byrjun 20. aldar og þróun þeirra innan tískugeirans. Í upphafi eru þjóðflokkar Eskimóa og Chukchi frumbyggjanna skoðaðir en báðir þjóðflokkarnir koma frá norðurhveli jarðar. Í gegnum tíðina hafa þessir þjóðflokkar þróað með sér stórbrotnar flíkur úr loðskinnum. Saga þjóðflokkanna verður rakin í grófum dráttum með megináherslur á klæðnaði þeirra. Komið verður inn á hvernig þeir komast í kynni við Rússa í byrjun 17. aldar sem hafði í för með sem gott viðskiptasamband. Í krafti Iðnbyltingarinnar sem hefst í lok 18. aldar kemur fyrsti fjöldaframleiddi einkabíllinn árið 1913 og má segja að hann hafi rutt veginn fyrir nýja tegund fatnaðar þar sem klæðnaður fólks breyttist mikið í kjölfarið. Fjallað verður um tískustrauma loðfelda á 20. öldinni og sérstaklega verður fjallað um ítalska tískuhúsið Fendi sem var og er brautryðjandi þegar kemur að loðfeldum. Stiklað verður á stóru í loðskinnaiðnaði Íslands þar sem fókusinn er á verksmiðjur Sambands Íslenskra Samvinnufélaga, SíS og framleiðslu þeirra á 20. öldinni. Í lokin fær lesandi smjörþefinn af loðskinnamarkaðnum í dag og honum gefin gróf mynd af því sem er að gerast í dag. Lykilorð: Chukchi, Fendi