Heilsársnotkun í Hlíðarfjalli

Ferðamönnum á Íslandi fjölgar ár frá ári og hefur Ísland orðið vinsæll áfangastaður til að heimsækja. Ferðamenn sem koma til Akureyrar yfir vetrartímann eru þeir einu sem fá að njóta Hlíðarfjalls. Eins og staðan er í dag koma fleiri ferðamenn til landsins yfir sumartímann. Í þessu verkefni er Hlíðar...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hildur Hafbergsdóttir 1992-
Other Authors: Landbúnaðarháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Dee
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/22079
Description
Summary:Ferðamönnum á Íslandi fjölgar ár frá ári og hefur Ísland orðið vinsæll áfangastaður til að heimsækja. Ferðamenn sem koma til Akureyrar yfir vetrartímann eru þeir einu sem fá að njóta Hlíðarfjalls. Eins og staðan er í dag koma fleiri ferðamenn til landsins yfir sumartímann. Í þessu verkefni er Hlíðarfjall á Akureyri skoðað út frá möguleika að heilsársnotkun. Notkunin á svæðinu í dag er takmörkuð við veturinn en svæðið gæti haft mikið meira upp á að bjóða á öðrum tímum ársins. Markmið verkefnis er að leita svara við því hvort heilsársnotkun á svæðinu sé möguleiki. Lítil sem engin reynsla er af heilsársnotkun á skíðasvæðum á Íslandi og fáar rannsóknir eru til um notkunarmöguleika á öðrum árstíðum. Hvort slík notkun gangi upp hér á Íslandi er því óljós. Í verkefninu verður Hlíðarfjall tekið fyrir og skoðað sérstaklega hvernig hægt væri að byggja upp heilsársnotkun fyrir alla aldurshópa allt árið um kring. Rannsóknarspurningin sem lögð var fram var: 1. Hvernig má nýta skíðasvæði sem heilsárs útivistarsvæði? Til að svara rannsóknarspurningunni var farið í vettvangsferðir, svæðið myndað og greint, lesnar bækur og annað efni. Svæðið var greint eftir greiningaraðferðum Catherine Dee úr bókinni Form and Fabric in Landscape Architecture ásamt Bók Simon Bell Elements of Visual Design in the Landscape – Second Edition. Í lokin er lögð fram hönnunartillaga sem byggð verður á greiningum og hönnunarforsendum sem kynntar hafa verið. Tillögur verða lagðar fram, hvað hægt er að framkvæma og nýta á skíðasvæðum þegar snjórinn hverfur og gæti tillagan nýst sem fordæmi fyrir önnur skíðasvæði á Íslandi. Niðurstaða verkefnisins er að lokum lögð fram og sýnir að heilsárs notkun á skíðasvæðum er raunhæfur möguleiki.