Rekstrarumhverfi Knattspyrnusambands Íslands

Markmið rannsóknarinnar er að leitast við að meta rekstrarumhverfi Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ) og greina styrkleika og veikleika umhverfisins sem það starfar í. Til þess að meta umhverfið sem það starfar í var framkvæmd viðtalsrannsókn, þar sem rætt verður við aðila sem starfa fyrir sambandið...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ástrós Eiðsdóttir 1990-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/22042
Description
Summary:Markmið rannsóknarinnar er að leitast við að meta rekstrarumhverfi Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ) og greina styrkleika og veikleika umhverfisins sem það starfar í. Til þess að meta umhverfið sem það starfar í var framkvæmd viðtalsrannsókn, þar sem rætt verður við aðila sem starfa fyrir sambandið og hafa þar af leiðandi öðlast með reynslu og aðkomu sinni sérþekkingu á rekstrarumhverfi KSÍ. Fyrst verður almennt farið í rekstrarhagfræðina og hvað einkennir rekstrarumhverfi fyrirtækja og svo verður farið í það sértæka í starfi KSÍ. Rekstrarumhverfi skiptist í innra og ytra umhverfi. Í innra umhverfi fyrirtækja eru allir þeir aðilar sem fyrirtækið á í samskiptum við og svo fyrirtækið sjálft. Í ytra umhverfi fyrirtækja eru þau síbreytilegu öfl sem hafa áhrif á og jafnvel breyta innra umhverfi fyrirtækja með einum eða öðrum hætti. Áhersla er lögð á fimm efnisþætti er varða rekstrarumhverfi sambandsins, mannauð, skatta – og fjármögnunarumhverfi, samskipti við stjórnvöld og ríkisstofnanir og laga – og regluumhverfi. Megin niðurstaða rannsóknarinnar er sú að öll fyrirtæki starfa í breytilegu umhverfi bæði með ógnunum og tækifærum. Félagasamtök á borð við KSÍ eru rekin eins og fyrirtæki og er rekstrarumhverfi þeirra er að mörgu leyti svipað þó svo að stjórnun og rekstur félagasamtaka lúti með ýmsum hætti öðrum lögmálum en t.d. einkafyrirtæki og opinberar stofnanir. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að rekstur KSÍ hefur verið mjög stöðugur undanfarin ár og að óstöðugt gengi gjaldmiðilsins veldur vandkvæðum í rekstri sambandsins. Útprentun og/eða afritun er óheimil nema með skriflegu leyfi höfundar. Verkið er verndað af ákvæðum höfundarlaga.