Fræðslusjóðir atvinnulífsins tilurð og tilgangur : hver er ávinningurinn af fræðslusjóðum atvinnulífsins fyrir félagsmenn Stéttarfélags Vesturlands?

Frá upphafi verkalýðshreyfingarinnar hafa verkalýðsfélög unnið að því að styrkja og styðja við menntun og færni félaga sinna. Frá árinu 2000 hafa fræðslusjóðir verið eitt af þeim verkfærum sem efla samfélagið, atvinnulífið og verkafólk með því að fjölga tækifærum til símenntunar. Í þessari rannsókn...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sjöfn Elísa Albertsdóttir 1974-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/22040
Description
Summary:Frá upphafi verkalýðshreyfingarinnar hafa verkalýðsfélög unnið að því að styrkja og styðja við menntun og færni félaga sinna. Frá árinu 2000 hafa fræðslusjóðir verið eitt af þeim verkfærum sem efla samfélagið, atvinnulífið og verkafólk með því að fjölga tækifærum til símenntunar. Í þessari rannsókn voru skoðuð tilurð, tilgangur og nýting fræðslusjóða hjá félagsmönnum Stéttarfélags Vesturlands með það að markmiði að fá innsýn í ávinning félagsmanna af fræðslusjóðunum. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að minna en 10% af félagsmönnum Stéttarfélagsins sækja sér styrki í fræðslusjóðina. Konur nýta sjóðina í meira mæli en karlar en meðaltalsupphæð styrkja var mun hærri hjá körlum sem voru einnig að þiggja hærri meðaltalsupphæð styrkja á landsvísu. Félagsmenn Stéttarfélags Vesturlands nýttu fræðslusjóðina mun oftar til tómstundanáms en á landsvísu og má segja að tómstundastyrkir styrki ekki beinlínis vinnumarkaðinn en mannræktarsjónarmiðið er þó þar til grundvallar og það má ekki vanmeta. Mælt er með frekari rannsókn á nýtingu fræðslusjóðanna á landsvísu annars vegar og á því hvort fræðslan sem er veitt nýtist verkafólki í atvinnulífinu eða styrki það á einhvern hátt á vinnumarkaði hins vegar. Útprentun og/eða afritun er óheimil nema með skriflegu leyfi höfundar. Verkið er verndað af ákvæðum höfundarlaga.