Heimildir umboðsmanna hlutafélaga.

Eftirfarandi ritgerð er lokaverkefni til ML-gráðu í lögfræði við Háskólann á Bifröst. Í ritgerðinni er fjallað um heimildir umboðsmanna hlutafélaga og takmarkanir þeirra. Það er markmið þessarar ritgerðar að gera grein fyrir hvaða forsvarsmenn hlutafélaga hafa umboð til að skuldbinda þau, hvaða heim...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristján Örvar Sveinsson 1986-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/22039
Description
Summary:Eftirfarandi ritgerð er lokaverkefni til ML-gráðu í lögfræði við Háskólann á Bifröst. Í ritgerðinni er fjallað um heimildir umboðsmanna hlutafélaga og takmarkanir þeirra. Það er markmið þessarar ritgerðar að gera grein fyrir hvaða forsvarsmenn hlutafélaga hafa umboð til að skuldbinda þau, hvaða heimildir felist í þessum umboðum, við hvað skuli miða við mat á skuldbindingargildi löggerninga gerðra í skjóli þessara umboða og hvort takmarkanir á heimildum umboða hafi áhrif á önnur og víðtækari umboð sem einn og sami fyrirsvarsmaður hlutafélags kann að hafa. Í upphafi ritgerðarinnar er fjallað um félagarétt og hlutafélagaformið auk megineinkenna félaganna. Stjórnir hlutafélaga og fyrirkomulag þeirra er skoðað til skýringar á hvaða stöðum umboðsmenn hlutafélaga gegna og hvernig umboð þeirra tengjast fyrirkomulagi stjórnanna. Því næst er farið yfir hverjar heimildir umboða til að skuldbinda hlutafélög eru og hvert umboð skoðað til hlítar með hliðsjón af dómaframkvæmd og reynt eftir fremsta megni að varpa ljósi á hvar mörk þeirra liggja. Undanþágur frá skuldbindingargildi gerninga við hlutafélög eru því næst skoðaðar og hver áhrif birtingar tilkynninga um tilgang hlutafélags eru. Að lokum er efni ritgerðarinnar dregið saman og ályktanir dregnar út frá umfjöllun hennar um heimildir umboðsmanna hlutafélaga, hvar takmörk þessara heimilda liggja og hve skýr þau eru auk þess sem höfundur veltir fyrir sér hvort og hvernig megi styrkja réttarstöðu viðsemjenda hlutafélaga. Ritgerðin er lokuð að ósk höfundar. Hafa þarf samband við höfund til að nálgast efni ritgerðarinnar. Verkið er verndað af ákvæðum höfundarlaga.