Kirkjuheimsóknir grunnskólanema í Reykjavík

Í desember 2014 fór af stað mikil umræða um kirkjuheimsóknir grunnskólabarna í Reykjavík á aðventunni og mátti greina mjög mismunandi viðhorf manna til málefnisins. Nokkuð fór að bera á tilvísunum í hefðina fyrir þessum heimsóknum, þar sem ýmist var talað um heimsóknirnar sem gamla og góða hefð, jól...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Helena Dögg Haraldsdóttir 1978-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/22030
Description
Summary:Í desember 2014 fór af stað mikil umræða um kirkjuheimsóknir grunnskólabarna í Reykjavík á aðventunni og mátti greina mjög mismunandi viðhorf manna til málefnisins. Nokkuð fór að bera á tilvísunum í hefðina fyrir þessum heimsóknum, þar sem ýmist var talað um heimsóknirnar sem gamla og góða hefð, jólahefð eða hreint enga hefð. Markmið rannsóknarinnar er að komast að því hvort grundvöllur sé fyrir þeirri tilvísun í hefðina sem greina mátti í umræðunni um kirkjuheimsóknir grunnskólanema. Megin niðurstaða er fengin með megindlegri rannsóknaraðferð, þar sem spurningakannanir voru lagðar fyrir grunnskólastjórnendur og sóknarpresta í Reykjavík og þeim jafnframt gefinn kostur á að koma eigin athugasemdum á framfæri. Niðurstöður kannananna voru svo tengdar við fræðin og greiningu á umræðunni sem átt hafði sér stað í desember 2014. Er rannsóknaspurningin þessi: Er hefð fyrir skipulögðum kirkjuheimsóknum grunnskólanema í Reykjavík á aðventu? Ef svo, í hverju felst hefðin? Niðurstaða rannsóknarinnar leiddi í ljós að hefð er fyrir skipulögðum kirkjuheimsóknum grunnskólanema í Reykjavík á aðventu. Er hefðin þó ekki jafn gömul og víðtæk eins og einhverjir virtust halda. Þá ekki síst í ljósi þess að í mörgum grunnskólum borgarinnar hafa kirkjuheimsóknir grunnskólanema á aðventu verið lagðar af. Hefur hefð kirkjuheimsóknanna því orðið mun staðbundnari síðastliðin ár, þar sem hún einskorðast við einstaka grunnskóla fremur en grunnskólasamfélag Reykjavíkurborgar í heild. Útprentun og/eða afritun er óheimil nema með skriflegu leyfi höfundar. Verkið er verndað af ákvæðum höfundarlaga.