Tengsl skotleikjaspilunar og árásarhneigðar : greining á rannsókn meðal grunnskólabarna á Íslandi

Í þessari greiningu eru tengl skoðuð á milli spilunar skotleikja og ýgigirni í unglingum á Íslandi útfrá gögnum EUNET-ADB. Slíkt er mörgum áhyggjuefni núna á síðari árum þar sem að sýndarveruleikinn sem að slíkir leikir bjóða upp á alltaf að verða raunverulegri og raunverulegri. Einnig er farið yfir...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Arnór Helgi Knútsson 1991-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/21958
Description
Summary:Í þessari greiningu eru tengl skoðuð á milli spilunar skotleikja og ýgigirni í unglingum á Íslandi útfrá gögnum EUNET-ADB. Slíkt er mörgum áhyggjuefni núna á síðari árum þar sem að sýndarveruleikinn sem að slíkir leikir bjóða upp á alltaf að verða raunverulegri og raunverulegri. Einnig er farið yfir fyrri rannsóknir og stöðu umræðunnar um þessi tengsl. Litið er á rannsóknir frá báðum hliðum og reynt að finna meginpunktana ásamt því að skoða þær kenningar sem að helst eru notaðar til að útskýra spilun eða inntöku efnis af þessu tagi. Tengslin skoðuð útfrá ónæmiskenningunni, útræslu og uppfyllingu Langana. Auðséð að ekki er mikil samstaða meðal rannsakenda varðandi endanlega niðurstöðu en meginpunkturinn virðist vera að áhrifin séu til staðar en orsök þeirra sé ekki á hreinu, sér í lagi með tilkomu nýrri rannsókna sem að skoða frekar aðra þætti en ofbeldið sem að birtist á skjánum. Gengið er útfrá því í þessari greiningu að þessi tengsl séu til staðar á milli spilunar og ýgi en þó séu fleiri þættir sem að vert er að skoða áður en sagt er til um hvað er megináhrifavaldurinn. Niðurstaðan úr greiningu gagna sýnir að vissulega er tenging til staðar en þó er möguleiki á að hér sé um að ræða kynjabundin mun. Farið er yfir hvaða framtíðarrannsóknir eru mögulegar á sama sviði og með sömu gögnum ásamt því hvað þarf að hafa í huga við gerð slíkra rannsókna. Lokapunkturinn er svo hversu margir nýjir þættir hafa komið fram á síðust árum með rannsóknum á fleiri mögulegum árhifavöldum en einungis ofbeldisfulla efninu sem að miðillinn getur sýnt og nauðsyn þess að líta eftir eða taka tilit til þeirra í frekari rannsóknum á þessu sviði. The current study focuses on potential connections between the playing of shooting-games and aggression in adolescents in 9th-10th grade in primary schools in Iceland according to data from EUNET-ADB. Worries about this issue becoming more and more prevelant as the graphics and look of these games becomes more and more realistic. A look on previos research shows quite a lot of disagreement in ...