Summary: | Verkefnið er lokað til 12.8.2020. Ýmsar heimildir benda til þess að bakslag sé í jafnréttismálum á Íslandi og var markmið þessarar rannsóknar að varpa ljósi á hvort svo sé raunin. Tekin voru rýnihópaviðtöl við 15 framhaldsskólanemendur á aldrinum 18–20 ára haustið 2014. Þátttakendur voru frá tveimur framhaldsskólum; bekkjar-kerfisskóla af höfuðborgarsvæðinu og fjölbrautaskóla af landsbyggðinni. Einn hópur samanstóð af stúlkum, annar af strákum og tveir voru blandaðir. Tilgangurinn var að komast að því hver viðhorf framhaldsskólanemenda eru til femínisma og kynjajafnréttis á Íslandi og hvernig viðmælendur upplifa þá umræðu sem á sér stað innan skólans, heimilisins, vinahópsins og í fjöl- og vefmiðlum. Rannsóknarspurningin var: Hvaða merkingu leggja framhalds-skólanemar í hugtakið „femínismi“ og telja þeir að enn sé þörf á femínisma í okkar samfélagi. Skoðanir nemenda voru ekki einsleitar en ýmis sameiginleg þemu litu dagsins ljós við úrvinnslu viðtalanna. Forskeytið femin, öfgafemínismi, munurinn á jafnréttissinna og femínista, baráttumál femínista og áhrif umhverfissins á skoðanir þeirra voru helstu þemun í niðurstöðum þessarar rannsóknar. Önnur duldari þemu líkt og kyn- og forréttindablinda lituðu viðtölin og voru þau sérstaklega rædd. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu augljósa vöntun á kynja- og jafnréttisfræðslu í framhaldsskólum. Viðmælendur voru illa upplýstir um hvað femínismi stendur fyrir og rökstuddu þeir skoðanir sínar með skoðunum annarra eða staðhæfingum fengnum frá vefmiðlum. Ungt fólk verður að búa yfir haldbærum tækjum og tólum til að geta myndað sér upplýstar skoðanir og rökstutt viðhorf sín innan skólastofunnar sem og utan. Svo virðist sem að nemendur séu illa búnir til að kljást við og ræða jafnréttismál og hugtakið femínisma. Lausnin á vandanum felst meðal annars í aukinni þekkingu nemenda innan kynja- og jafnréttisfræða. Sources indicate that there is a backlash in equality in Iceland. The goal of this thesis is to shed some light on whether that is so. Focus group interviews were taken ...
|