Leiðin að iðnnámi

Ritgerð þessi er lokaritgerð sem unnin er til M.Ed. prófs í menntunarfræði við Háskólann á Akureyri. Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á hvað liggur að baki vali nemenda sem fara í iðnnám að loknum grunnskóla. Gerð er grein fyrir sögu iðnnáms á Íslandi og hvernig verkmenntun birtist í grunnsk...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Anna Kristín Gunnarsdóttir 1990-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/21921
Description
Summary:Ritgerð þessi er lokaritgerð sem unnin er til M.Ed. prófs í menntunarfræði við Háskólann á Akureyri. Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á hvað liggur að baki vali nemenda sem fara í iðnnám að loknum grunnskóla. Gerð er grein fyrir sögu iðnnáms á Íslandi og hvernig verkmenntun birtist í grunnskólum og framhaldsskólum. Vísað er í lög og reglugerðir sem snúa að iðnnámi ásamt rannsóknum á þeim tímamótum þegar nemendur í grunnskólum standa frammi fyrir því að velja sér náms- og starfsferil. Tekin voru viðtöl við tíu nemendur úr tveimur fjölbrautaskólum. Viðtölin snerust um upplifun þeirra af þeim tímamótum þegar taka þurfti ákvörðun um hvert þeir vildu stefna að loknum grunnskóla. Niðurstöður viðtalanna leiddu í ljós að nemendur velja iðnnám að loknum grunnskóla vegna áhuga á iðngreinum. Þeir leituðu meðal annars til foreldra sinna þegar þeir veltu fyrir sér því vali sem stóð þeim til boða en á endanum tóku þeir sjálfstæða ákvörðun án þrýstings frá öðrum en nutu þó engu að síður stuðnings frá foreldrum. Rannsóknin sýndi að fáir nemendur virðast leita ráða hjá náms- og starfsráðgjafa þegar þeir ráða fram úr því hvert þeir vilja stefna í lífinu. Engu að síður virðist meirihluti nemenda hafa haft aðgang að slíkri aðstoð en nýttu sér hana ekki. Þó áhugi hafi ráðið vali nemenda, að fara í iðnnám að loknum grunnskóla, þá töluðu nemendur um að náms- og starfskynningar og heimsóknir í framhaldsskóla hafi gefið góða innsýn í það námsframboð sem stóð þeim til boða og hjálpað þeim að þrengja val sitt, þrátt fyrir að ráða ekki alfarið valinu. This thesis is a final assignment towards M.Ed. degree in magister education science at the University of Akureyri. The purpose of this thesis is to shine a light on what lies behind the decision to go to vocational school after elementary school. Emphasis is on the history of vocational education in Iceland and how crafts are thought in elementary schools. Also there will be emphasis on laws and regulations presented by the government about vocational education and researches that ...