Sýnileiki hótela í Reykjavík í rafrænum heimi

Um 80% erlendra ferðamanna sem heimsækja Ísland nýta sér leitar- og bókunarsíður til að fræðast um landið og bóka gistingu og afþreyingu. Ástæða er til að skoða hvers vegna ferðamenn nýta sér þjónustu erlendra bókunarsíðna t.d. þegar bókuð er gisting frekar en að bóka beint á heimasíðu hótelsins. Í...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hermann Valsson 1956-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/21889
Description
Summary:Um 80% erlendra ferðamanna sem heimsækja Ísland nýta sér leitar- og bókunarsíður til að fræðast um landið og bóka gistingu og afþreyingu. Ástæða er til að skoða hvers vegna ferðamenn nýta sér þjónustu erlendra bókunarsíðna t.d. þegar bókuð er gisting frekar en að bóka beint á heimasíðu hótelsins. Í ritgerðinni er fjallað um rannsókn á sýnileika hótela í Reykjavík þegar leitað er eftir hótelgistingu í Reykjavík í gegnum leitarvélina Google með leitarorðunum hotels reykjavik. Rannsóknin var framkvæmd með sýndartengingu frá þeim ellefu löndum sem flestir ferðamenn komu frá til Íslands árið 2014. Niðurstaðan er sú að sýnileika hótelanna í Reykjavík er mjög ábótavant. Erlendu bókunarsíðurnar hafa náð góðum árangri í leitarvélabestun og eru orðnar mjög sýnilegar á internetinu við leit að gistingu í Reykjavík. Þær hafa náð að koma krækjum sínum efst upp á fyrstu síðu leitarniðurstöðunnar. Bóki ferðamaður gistingu á erlendri bókunarsíðu, í stað þess að fara beint inn á heimasíðu hótelsins og bóka þar, þarf hótelið að greiða frá 10% til 30% bókunarþóknun til viðkomandi bókunarþjónustu. Hér er um umtalsverðar fjárhæðir að ræða sem "leka" út úr íslenska hagkerfinu. Ljóst er því að mikil vinna bíður þeirra sem vinna að sölu- og markaðsmálum hótelanna í Reykjavík til að auka sýnileikann á netinu. Einnig þurfa hótelin að huga að nýjum leiðum í markaðssetningu í baráttunni við bókunarsíður um hylli ferðamanna. Þessi vandi hótelanna í Reykjavík er ekkert einsdæmi. Sami vandi blasir við þegar leitað er eftir hótelum í höfuðborgum þeirra tuttugu landa sem flestir ferðamenn heimsækja. About 80% of foreign tourists visiting Iceland use foreign search and booking sites in order to learn about the country and book accommodation and entertainment. It is necessary to understand why travelers do that rather than to book directly on the hotel's website. The paper focuses on the study of the visibility of hotels in Reykjavik when searching for accommodation in the capital through Google’s search engine with the keywords hotels ...