Vetrarfæða tófu (Vulpes lagopus) á Íslandi: Samanburður á vetrarfæðu tófu á milli landshluta
Á Íslandi gegnir tófan (Vulpes lagopus) ákveðinni sérstöðu þar sem hún er erfðafræðilega einangruð og lífshættir hennar eru öðruvísi en á öðrum stöðum þar sem hana er að finna. Þetta skýrist af fæðuframboði og fæðuvali sem endurspeglast í lægri og stöðugri frjósemi en á öðrum svæðum. Samanburður var...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2015
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/21845 |
Summary: | Á Íslandi gegnir tófan (Vulpes lagopus) ákveðinni sérstöðu þar sem hún er erfðafræðilega einangruð og lífshættir hennar eru öðruvísi en á öðrum stöðum þar sem hana er að finna. Þetta skýrist af fæðuframboði og fæðuvali sem endurspeglast í lægri og stöðugri frjósemi en á öðrum svæðum. Samanburður var gerður á vetrarfæðu tófa á milli Austurlands og Vesturlands með því að skoða magainnihald. Landsvæðin eru ólík hvað varðar búsvæði refa en á vesturhluta landsins eru strandsvæði algengari en austanlands. Í heildina var munur á tíðni fæðugerða á milli landshluta (P-gildi = 0.003). Þegar einstaka fæðugerðir voru skoðaðar var þó ekki mikill munur. Á Vesturlandi var tíðni og magn sjófugla, fiska og hryggleysingja í magainnihaldi meira sem bendir til þess að tófur þaðan nýti frekar fæðu af hafrænum uppruna. Tíðni hryggleysingja var einnig hærri á Vesturlandi. Stærri spendýr og fuglar voru mikilvægur hluti af fæðu tófa á báðum landshlutum. Eggjaleifar fundust eingöngu á Austurlandi en þó sjaldan og í litlu magni. Fæðuval tófu á Íslandi þarf þarf þó að skoða betur með fleiri sýnum og með því að bera saman fleiri svæði og árstíðir til þess að bæta við þekkingu á vistfræði þessa tækifærissinaða rándýrs. |
---|