Árangursmat á heildstæðum stuðningi við jákvæða hegðun í einum leikskóla í Reykjavík
Heildstæður stuðningur við jákvæða hegðun (school-wide positive behavior support) er hegðunarstjórnunarkerfi sem ætlað er að laða fram félagslega æskilega hegðun. Kerfið er forvarnakerfi en aðferðir þess koma í veg fyrir óæskilega hegðun og breyta henni. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvað...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2015
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/21843 |
Summary: | Heildstæður stuðningur við jákvæða hegðun (school-wide positive behavior support) er hegðunarstjórnunarkerfi sem ætlað er að laða fram félagslega æskilega hegðun. Kerfið er forvarnakerfi en aðferðir þess koma í veg fyrir óæskilega hegðun og breyta henni. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvaða áhrif innleiðing á heildstæðum stuðningi við jákvæða hegðun hefði á hegðun starfsmanna og barna tveggja leikskóla á höfuðborgarsvæðinu. Fyrri rannsóknir hafa sýnt að kerfið minnki óæskilega hegðun hjá nemendum í grunnskólum og bæti viðmót hjá starfsmönnum grunnskóla. Minna er til af rannsóknum sem sýna árangur kerfisins í leikskólum en með slíkum rannsóknum hefur þó verið leitt í ljós að kerfið minnkar óæskilega hegðun barna í leikskólum. Þessi rannsókn mældi áhrif heildstæðs stuðnings við jákvæða hegðun með beinu áhorfi í tveimur leikskólum. Margfalt grunnskeiðssnið var notað til að meta áhrif kerfisins. Gögnum var safnað vorið 2013 í báðum leikskólum en einnig haustið 2013, vorið 2014, haustið 2014 og vorið 2015 í öðrum þeirra (leikskóla 1) og eru niðurstöðurnar birtar hér. Helstu niðurstöður eru þær að áhrif kerfisins voru lítil sem engin í leikskóla 1. |
---|