Summary: | Yfirfærsla barna milli leik- og grunnskóla er talin hafa mikil áhrif á upplifun þeirra af grunnskólagöngunni. Stór þáttur í jákvæðri yfirfærslu er að það sé samfella milli skólastiganna, þ.e. að í grunnskólanum er byggt ofan á þekkingu og reynslu barna sem þau hafa öðlast í leikskólanum. Það er því mikilvægt að horfa til þessara þátta og stuðla að skólakerfi sem leggur áherslu á að börn upplifi á jákvæðan hátt að fara úr leikskóla og í grunnskóla. Í ritgerðinni er sagt frá starfendarannsókn sem gerð var á Akureyri þar sem tilgangurinn var að byggja enn betri brú milli leik- og grunnskóla. Hluti af rannsókninni er þróunarverkefni sem leikskólarnir Lundarsel og Pálmholt unnu ásamt hverfisgrunnskólanum Lundarskóla. Þróunarverkefnið heitir Leikum og lærum saman. Í þróunarverkefninu var gerð könnun um líðan barna við skólaskilin ásamt könnunum til foreldra og kennara um viðhorf þeirra til þróunarverkefnisins. Einnig voru niðurstöður læsisprófs í 1. bekk skoðaðar með það að leiðarljósi að sjá hvort börn sem tóku þátt í þróunarverkefninu hefðu meiri lestrarfærni en samanburðarhópur. Til viðbótar könnunum í þróunarverkefninu var gerð framhaldsrannsókn þar sem læsisniðurstöður í 1. bekk voru skoðaðar til að athuga hvort börn í samstarfsleikskólum, þ.e. leikskólum sem eiga í reglulegu samstarfi við grunnskólann, hefðu meiri lestrarfærni en börn úr öðrum leikskólum. Sú rannsókn náði til fjögurra grunnskóla og fjögurra árganga 1. bekkjar. Rannsóknarspurningin er: Hefur samstarf leik- og grunnskóla áhrif á líðan barna og lestrarnám þeirra við grunnskólabyrjun? Meginniðurstöður rannsóknanna sýna að það er hægt að bæta líðan barna með því að auka við hefðbundið samstarf milli skólastiga. Niðurstöður sýna einnig vísbendingar í þá átt að börn sem koma úr samstarfsleikskólum standi sig betur í lestrarnáminu. Þetta má mögulega rekja til þess að þau eru öruggari í skólaumhverfinu þar sem skólastigin hafa verið í samstarfi um aðlögun barnanna að grunnskólanum. Rannsóknin sýnir mikilvægi þess fyrir kennara að vera sífellt að leita að ...
|