Fæðingarsturlun : orsök, afleiðingar og meðferðarúrræði

Verkefnið er lokað til 12.5.2055. Þessi fræðilega samantekt um fæðingarsturlun er unnin sem lokaverkefni frá Háskólanum á Akureyri til BS prófs í hjúkrunarfræði. Tilgangur hennar var að skoða fæðingarsturlun með tilliti til einkenna, orsaka og áhættuþátta ásamt helstu úrræðum sem í boði eru. Þær hei...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Linda Björk Rúnarsdóttir 1988-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/21808
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 12.5.2055. Þessi fræðilega samantekt um fæðingarsturlun er unnin sem lokaverkefni frá Háskólanum á Akureyri til BS prófs í hjúkrunarfræði. Tilgangur hennar var að skoða fæðingarsturlun með tilliti til einkenna, orsaka og áhættuþátta ásamt helstu úrræðum sem í boði eru. Þær heimildir sem notast var við eru að mestu leyti erlendar rannsóknir úr erlendum gagnasöfnum þar sem lítið fannst í íslenskum rannsóknum um fæðingarsturlun. Fæðingarsturlun er alvarlegasta form geðraskana sem fram koma í kjölfar barnsburðar en lítið hefur verið rætt um þennan vágest á almenningsvettvangi og jafnvel ekki nóg innan heilbrigðiskerfisins sjálfs. Á sama tíma og mikil aukning hefur verið í umræðu og vitundarvakningu um fæðingarþunglyndi virðast fáir vera meðvitaðir um hvað felst í fæðingarsturlun. Í þessari samantekt er fjallað um algengi og einkenni fæðingarsturlunar, hvað greinir hana frá öðrum geðrænum veikindum sem komið geta upp í kjölfar barnsburðar, hvaða líffræðilegu orsakir eru taldar vera á bakvið fæðingarsturlun og hvaða áhættuþættir ýta undir líkur á að fæðingarsturlun greinist hjá hverri konu fyrir sig. Einnig er skoðað hvernig mæðurnar og nánasta fjölskylda upplifðu fæðingarsturlun og hvaða áhrif ástandið hefur á börnin í upphafi æviskeiðsins. Að lokum er farið yfir þau meðferðarúrræði sem boðist hafa konum með fæðingarsturlun. Niðurstöður samantektarinnar sýndu að ljóst er að fæðingarsturlun er erfið lífsreynsla fyrir fjölskylduna alla þó að mæðurnar nái sér yfirleitt fljótt út úr ástandinu ef skjót greining og meðferð fæst. Til þess þarf þekking og úrræði að vera til staðar. Telur höfundur að þrátt fyrir að sértæk úrræði séu aðgengileg sé enn hægt að gera betur í þjónustu við konur sem upplifa fæðingarsturlun, sérstaklega varðandi skimun og beitingu meðferðarúrræða. This literature review on postpartum psychosis is a final dissertation essay for a BS degree in nursing from the University of Akureyri. Its purpose was to look at postpartum psychosis with regard to symptoms, cause and risk ...