„Við viljum koma til móts við þarfir íbúa“ : öflun og notkun hjúkrunarheimila á upplýsingum um íbúa

Aldraðir eru stækkandi hópur í íslensku samfélagi. Lögum samkvæmt eiga aldraðir rétt á aðstoð til að búa við eðlilegt heimilislíf eins lengi og unnt er og jafnframt á þeim að vera tryggð nauðsynleg stofnanaþjónusta þegar hennar er þörf. Þess skal gætt að aldraðir hafi tækifæri til að hafa stjórn á s...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Rósa María Sigurgeirsdóttir 1989-, Sæunn Pétursdóttir 1988-, Vilborg Lárusdóttir 1989-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/21806
Description
Summary:Aldraðir eru stækkandi hópur í íslensku samfélagi. Lögum samkvæmt eiga aldraðir rétt á aðstoð til að búa við eðlilegt heimilislíf eins lengi og unnt er og jafnframt á þeim að vera tryggð nauðsynleg stofnanaþjónusta þegar hennar er þörf. Þess skal gætt að aldraðir hafi tækifæri til að hafa stjórn á sínum málum og fái að taka sjálfstæðar ákvarðanir. Haga á skipulagi og rekstri öldrunarstofnana þannig að íbúar geti haldið sjálfræði sínu og háttum þannig að sem minnstar breytingar verði á aðstæðum þeirra. Með fjölgun aldraðra er líklegt að þörf fyrir þjónustu hjúkrunarheimila fari vaxandi og mikilvægt er að hún taki mið af einstaklingsbundnum þörfum og óskum íbúa. Tilgangur rannsóknarinnar er að leita svara við því hvernig hjúkrunarheimili og stofnanir með hjúkrunarrými afla upplýsinga um bakgrunn íbúa sinna, óskir þeirra og venjur og hvernig upplýsingarnar eru notaðar. Verkefninu er ætlað að svara eftirfarandi spurningum: 1) Að hvaða marki afla og nýta hjúkrunarheimili/stofnanir með hjúkrunarrými bakgrunnsupplýsingar um nýja íbúa? 2) Að hvaða marki afla og nýta hjúkrunarheimili/stofnanir með hjúkrunarrými upplýsingar um óskir íbúa varðandi daglegar venjur? Í úrtakinu voru öll hjúkrunarheimili og heilbrigðisstofnanir með langtíma legurými á Íslandi, eða 61 stofnun. Spurningalisti var sendur á einn tengilið á hverju heimili og bárust 37 svör sem gerir 61% svörun. Við rannsóknina var notast við megindlegt lýsandi rannsóknarsnið. Helstu niðurstöður voru að hjúkrunarheimilin sem svör bárust frá öfluðu öll upplýsinga um íbúa sína á einhvern máta. Alls öfluðu 86,5% heimilanna upplýsinga um bakgrunn íbúa og algengast var að þær væru nýttar til að kynnast íbúum betur og styrkja tengsl við þá. Nær öll heimilin, eða 97% öfluðu upplýsinga um daglegar venjur og óskir íbúa. Algengast var að þær upplýsingar væru nýttar til að koma til móts við þarfir og óskir íbúa. The elderly population in Iceland is ever growing. According to law, the elderly have a right to normal living circumstances and are guaranteed any institutional ...