Þegar varnir líkamans bresta : verkjastjórnun einstaklinga með brunaáverka

Verkefnið er lokað til 11.5.2016. Tilgangur fyrirhugaðrar rannsóknar er að afla upplýsinga um verkjameðferð einstaklinga með brunaáverka og í framhaldi af því að leggja fram rannsóknaráætlun til að kanna hvaða verkjameðferð getur skilað bestum árangri. Við fyrirhugaða rannsókn verður notuð megindleg...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Berglind Ólafsdóttir 1990-, Aldís Erna Vilhjálmsdóttir 1990-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/21805
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 11.5.2016. Tilgangur fyrirhugaðrar rannsóknar er að afla upplýsinga um verkjameðferð einstaklinga með brunaáverka og í framhaldi af því að leggja fram rannsóknaráætlun til að kanna hvaða verkjameðferð getur skilað bestum árangri. Við fyrirhugaða rannsókn verður notuð megindleg rannsóknaraðferð og gagnasöfnun sem er stöðluð í íslenskri þýðingu á spurningalistanum American Pain Society Patient Outcome Questionnaire (APS-POQ-R) þar sem leitast verður við að svara eftirfarandi rannsóknarspurningu: Hver er besta mögulega verkjameðferð fyrir einstaklinga með brunaáverka? Úrtak fyrirhugaðrar rannsóknar verða einstaklingar sem hlotið hafa brunaáverka og legið hafa inni á Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk) eða Landspítala Háskólasjúkrahúss (LSH) í a.m.k. einn sólarhring. Skilyrði fyrir þátttöku er að vera á aldursbilinu 12-67 ára, búsettir á Íslandi, tala íslensku og hafa vitsmuni til að skilja rannsóknina og svara spurningalistanum. Einstaklingur með brunaáverka getur kennt mikils sársauka sem getur valdið mörgum fylgikvillum. Erfiðlega hefur tekist að verkjastilla þá einstaklinga og er það mikið vandamál. Verkjalyf eru aðalmeðferð einstaklinga með brunaáverka en mikilvægt er að nota viðbótarmeðferð samhliða til að veita árangursríkari verkjameðferð. Með fyrirhugaðri rannsókn vonast rannsakendur til að hjúkrunarfræðingar geri sér grein fyrir mikilvægi skilvirkrar verkjastjórnunar og að þekking aukist á eðli brunaverkja og meðferðum við þeim. The purpose of the planned research project is to gather information on the pain management of patients with burns and, subsequently, put forward a research plan to see which pain treatment will have the best results. During the research quantitative analysis will be used as well as data collection, which is standardized with the Icelandic translation of the questionnaire American Pain Society Patient Outcome Questionnaire (APS-POQ-R), and the research question will be: What is the best possible pain treatment for patients with burns? The sample group will ...