Betur má ef duga skal

Í ritgerðinni er fjallað um niðurstöður á athugunum sem gerðar voru í leikskóla í Reykjavík vorið 2006. Gerð var athugun á því hvernig stuðning fatlað barn fékk í leik og daglegum athöfnum og hvernig samskipti það barn átti við önnur börn í leikskólanum. Fylgst var með tæplega þriggja ára dreng með...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Anna Guðrún Sigurjónsdóttir
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/218
Description
Summary:Í ritgerðinni er fjallað um niðurstöður á athugunum sem gerðar voru í leikskóla í Reykjavík vorið 2006. Gerð var athugun á því hvernig stuðning fatlað barn fékk í leik og daglegum athöfnum og hvernig samskipti það barn átti við önnur börn í leikskólanum. Fylgst var með tæplega þriggja ára dreng með Downs-heilkenni. Notaðar voru eigindlegar rannsóknaraðferðir þar sem gagna var aflað með þátttökuathugunum og opnu viðtali. Helstu niðurstöður eru þær að drengurinn var frekar utanveltu í leik og í samskiptum við önnur börn. Hann var ekki raunverulegur þátttakandi í leik þótt hann væri til staðar. Þær sem höfðu umsjón með stuðningi við drenginn voru hins vegar meðvitaðar um mikilvægi þess að styðja hann í leik og lögðu sig fram við það. Þær höfðu nám án aðgreiningar að leiðarljósi í sínu starfi. Ekki fékk hann þó alltaf þann stuðning í leik sem æskilegt hefði verið, t.d. vegna kaffitíma starfsfólks. Niðurstöðurnar gefa tilefni til að ætla að þörf sé á að skoða nánar þátttöku barna með þroskahömlun í leik og þann stuðning sem þau fá.