Hjartans mál : hjarta- og æðasjúkdómar eru líka sjúkdómar kvenna

Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri. Tilgangur fyrirhugaðrar rannsóknar er að kanna þekkingu hjúkrunarfræðinga á bráðamóttökum á einkennum kransæðastíflu og kynbundinn mun á þeim. Jafnframt er tilgangurinn að kanna hv...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Gerður Sif Skúladóttir 1987-, Jóna Sif Leifsdóttir 1973-, Kristjana Sigurveig Sveinsdóttir 1984-, Sunna Björg Bjarnadóttir 1987-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/21767
Description
Summary:Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri. Tilgangur fyrirhugaðrar rannsóknar er að kanna þekkingu hjúkrunarfræðinga á bráðamóttökum á einkennum kransæðastíflu og kynbundinn mun á þeim. Jafnframt er tilgangurinn að kanna hvað liggur að baki þeim ákvörðunum sem hjúkrunarfræðingar taka við forgangsröðun sjúklinga með grun um kransæðastíflu. Þátttakendur rannsóknarinnar verða 20 hjúkrunarfræðingar á fjórum bráðamóttökum á Íslandi með a.m.k. fimm ára starfsreynslu á því sviði. Hjarta- og æðasjúkdómar eru ein helsta dánarorsök karla og kvenna í heiminum í dag. Kransæðasjúkdómar eru helsta umfjöllunarefni þessa verkefnis og valda þeir flestum dauðsföllum af hjarta- og æðasjúkdómum. Í rannsókninni verður megin áhersla lögð á konur með kransæðastíflu en í gegnum tíðina hefur athyglinni verið beint frekar að körlum. Ástæður þess eru m.a. taldar vera að konur greinast seinna á lífsskeiðinu og birtingarmyndir einkenna þeirra eru oft óljósari. Þau einkenni sem konur tjá frekar en karlar eru t.d. svimi, dreifðir verkir í baki, hálsi, kjálka og maga, þróttleysi, hjartsláttaróregla og uppköst. Oft virðist vera flókið að greina óljós einkenni sem margar konur upplifa. Þær virðast líklegri en karlar til að vanmeta þessi einkenni, leita sér síður hjálpar og fá því ekki jafn skjóta og inngripsmikla meðferð og karlar. Aðferðafræðin sem stuðst verður við í rannsókninni er eigindleg og verður gagna aflað með rýnihópaviðtölum við hjúkrunarfræðinga á bráðamóttökum. Höfundar vonast til þess að niðurstöður fyrirhugaðrar rannsóknar verði til þess að bæta ákvarðanir við forgangsröðun, auka þekkingu á kransæðasjúkdómum meðal kvenna og að niðurstöðurnar geti nýst til þess að endurskoða og þróa klínískar leiðbeiningar og verkferla um kransæðasjúkdóma. This thesis is a final project to the completion of a B.Sc. degree in nursing from the University of Akureyri. The aim of the proposed study is to explore the knowledge of nurses in emergency departments (ED) of ...