Að horfast í augu við fíkil : verkjastilling ópíatháðra einstaklinga

Verkjastilling ópíatháðra einstaklinga getur verið flókin og reynt á hæfni og þekkingu þeirra sem sinna þeim. Þessir einstaklingar sýna oft erfiða hegðun vegna fíknar sinnar og einnig breytist sársaukanæmi þeirra eftir langvarandi notkun ópíata. Til þess að verkjastilling sé viðunandi þarf að forðas...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Jóna Maren Magnadóttir 1989-, Sólrún Arney Siggeirsdóttir 1990-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/21766
Description
Summary:Verkjastilling ópíatháðra einstaklinga getur verið flókin og reynt á hæfni og þekkingu þeirra sem sinna þeim. Þessir einstaklingar sýna oft erfiða hegðun vegna fíknar sinnar og einnig breytist sársaukanæmi þeirra eftir langvarandi notkun ópíata. Til þess að verkjastilling sé viðunandi þarf að forðast það að einstaklingar fái fráhvarfseinkenni og byrja þarf á því að mæta grunnópíatþörfum þeirra. Forðast á notkun ópíata til verkjastillingar við vægum verkjum en ef verkir eru miklir ætti að nota þau. Ef einstaklingar eru illa verkjastilltir eru þeir undir álagi og þá er líklegara að þeir falli í sama farið aftur og myndi fíkn í ópíöt. Rannsóknaráætlun þessi er til B.S. prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangur hennar er að skoða hvernig verkjastillingu þeirra ópíatháðu einstaklinga er háttað sem leita á bráðamóttöku Landspítalans og kanna hvort sjúklingar og hjúkrunarfræðingar meti hana nægilega góða. Rannsóknin kannar hvaða lyf eru gefin og í hvaða magni, ásamt því að meta viðhorf hjúkrunarfræðinga í garð þessa hóps. Þátttakendur eru annars vegar fullorðnir einstaklingar sem leita á bráðamóttökuna á 12 mánaða tímabili og uppfylla skilyrði rannsóknarinnar og hins vegar þeir hjúkrunarfræðingar sem sinna þeim. Rannsóknaraðferðin er megindleg og svara þátttakendur spurningalista. Lokaniðurstöður fást eftir ár þegar rannsóknartímabilinu lýkur. Rannsóknarspurningin er: Hvernig verkjastillingu fá ópíatháðir einstaklingar sem leita á bráðamóttöku Landspítalans og er hún viðunandi að mati sjúklinga og hjúkrunarfræðinga? Ekki hafa verið gerðar rannsóknir á Íslandi til þess að finna út fjölda ópíatháðra einstaklinga sem leita sér þjónustu á bráðamóttöku Landspítalans vegna verkja. Hægt væri að nota niðurstöðurnar til þess að bæta þjónustuna við þennan hóp og auka þekkingu hjúkrunarfræðinga og annars heilbrigðisstarfsfólks ef þörf er á. Pain management for opioid dependent patients can be very complicated and test the competence and knowledge of those who treat them. These individuals often show difficult ...