Líkamsrækt á meðgöngu

Þessi rannsóknaráætlun er unnin sem lokaverkefni til B.S. prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangurinn með henni er að afla fræðilegra upplýsinga um áhrif líkamsræktar á meðgöngu og hvaða viðhorf og þekkingu þungaðar konur hafa á henni. Í framhaldi af fræðilegri umfjöllun verður lög...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Áslaug Felixdóttir 1988-, Sunneva Jóhannsdóttir 1988-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/21765
Description
Summary:Þessi rannsóknaráætlun er unnin sem lokaverkefni til B.S. prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangurinn með henni er að afla fræðilegra upplýsinga um áhrif líkamsræktar á meðgöngu og hvaða viðhorf og þekkingu þungaðar konur hafa á henni. Í framhaldi af fræðilegri umfjöllun verður lögð fram rannsóknaráætlun fyrir rannsókn sem á að kanna hve hátt hlutfall íslenskra kvenna stunda líkamsrækt, hvað það er sem hvetur eða letur þær til að stunda líkamsrækt og að meta þörf á fræðslu sem konur fá frá hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum. Líkamsrækt á meðgöngu hefur margvísleg góð áhrif á þungaðar konur. Hún getur minnkað líkur á ýmsum mögulegum fylgikvillum meðgöngunnar svo sem stoðkerfisverkjum, meðgöngusykursýki og meðgöngueitrun. Líkamsrækt getur einnig bætt andlega líðan og svefn kvenna á meðgöngu. Margar konur hætta að stunda líkamsrækt á meðgöngu og eru helstu hindranirnar óþægindi tengd meðgöngu, þekkingarskortur og tímaleysi. Með fræðslu og hvatningu frá hjúkrunarfræðingum eða ljósmæðrum til þungaðra kvenna væri hægt að vinna á hindrunum og mögulega fjölga konum sem stunda líkamsrækt á meðgöngu. Í rannsókninni verður notuð megindleg aðferðafræði þar sem spurningalistar verða sendir til þungaðra kvenna í eðlilegri meðgöngu gengnar lengra en 34 vikur. Telja höfundar að með því að þekkja betur stöðu íslenskra kvenna, hvað hvetur þær áfram og hver þörfin er á fræðslu væri hægt að sníða gagnreynda fræðslu að þörfum íslenskra kvenna og samræma hana á milli heilsugæslustöðva um land allt. This research proposal is a thesis towards a B.S. degree in nursing from the University of Akureyri. The aim of the research proposal is to gather evidence based information on the effect of physical activity during pregnancy as well as information on pregnant women’s beliefs and knowledge on the subject. Following the literal review the research proposal will be presented, the purpose of the research is to gather information and explore how many Icelandic women exercise during pregnancy, what encourages them to do so and ...