Landmótun og laus jarðlög við Fláajökul

Viðfangsefni verkefnisins er að kortleggja, lýsa og greina landmótun og laus jarðlög framan við Fláajökul, og kynnt er nýtt landmótunarkort af framlandi jökulsins. Kortið var unnið í ArcGIS 10 og byggir á loftmyndum frá 2006 og 1989, LiDAR gögnum frá 2010 og gervitunglamynd (Landsat 8) frá 2013, auk...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Helga Lucia Bergsdóttir 1983-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/21722
Description
Summary:Viðfangsefni verkefnisins er að kortleggja, lýsa og greina landmótun og laus jarðlög framan við Fláajökul, og kynnt er nýtt landmótunarkort af framlandi jökulsins. Kortið var unnið í ArcGIS 10 og byggir á loftmyndum frá 2006 og 1989, LiDAR gögnum frá 2010 og gervitunglamynd (Landsat 8) frá 2013, auk athugana á vettvangi. Landformin sem kortlögð eru mynduðust ýmist undir jökli, við jökuljaðar eða ofan á jökli auk þess sem sum voru mynduð af jökulám. Kortlögð landform og setmyndanir eru dæmigerð fyrir landmótunarumhverfi virks, tempraðs jökuls. Það sem gerir framland Fláajökuls frábrugðið öðrum nútíma jafngangsjöklum er lítill jökulöldusveipur fyrir framan jökuljaðarinn sem fyrst varð vart við seint á níunda áratugnum og hefur síðan komið betur og betur í ljós vegna hlutfallslega hraðrar hörfunar jökulsins á síðustu tveimur áratugum. Jökulmynduðu landformin fjærst jöklinum eru frá hámarki Litlu ísaldar seint á 19. öld og kortið gefur gott yfirlit yfir framgang og hop jökulsins og landslagsmyndanir af hans völdum síðan í byrjun 20. aldar. Mikið af jökulvatnaseti og landform sem myndast hafa undir jökli og við jökuljaðarinn, sérstaklega á vestri hluta framlandsins, ásamt sögulegum heimildum, bera vitni um erfiða baráttu heimamanna við að halda jökulvötnunum í farvegum sínum og koma í veg fyrir að þau flæddu yfir tún og heimalönd suður af jöklinum eftir að hann tók að hörfa seint á 19. öld. The main goal of this study was to map and describe landforms and sediments in front of Fláajökull, southeast Iceland. A new glacial geomorphological map of the Fláajökull forefield is presented. The map was made in ArcGIS 10 and is based on aerial photographs recorded in 2006 and 1989, LiDAR data recorded in 2010 and a satellite image (Landsat 8) from 2013, as well as ground-checking in the field. The mapped landforms were of subglacial, ice-marginal, supraglacial and glaciofluvial origin. They depict a typical active temperate glacier landsystem with a high glaciofluvial yield. What sets the Fláajökull forefield apart from ...