Orðræða um ferðamál : samanburður milli áranna 2004 og 2014

Verkefnið er lokað til 31.5.2024. Í þessari ritgerð er ætlað að varpa ljósi á orðræðu um ferðamál í fjölmiðlum. Hér eru skoðaðar fréttir og greinar í tveimur íslenskum prentmiðlunum, Morgunblaðinu og Fréttablaðinu. Valdir voru tveir mánuðir, febrúar og júlí á árunum 2004 og 2014. Þar var leitað efti...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Elín Jónsdóttir 1979-
Other Authors: Háskólinn á Hólum
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/21642
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 31.5.2024. Í þessari ritgerð er ætlað að varpa ljósi á orðræðu um ferðamál í fjölmiðlum. Hér eru skoðaðar fréttir og greinar í tveimur íslenskum prentmiðlunum, Morgunblaðinu og Fréttablaðinu. Valdir voru tveir mánuðir, febrúar og júlí á árunum 2004 og 2014. Þar var leitað eftir orðunum ferðaþjónusta og ferðamál í gagnagrunnunum Tímarit.is og Fjölmiðlavaktin. Einungis voru innlendar fréttir og greinar skoðaðar. Þær voru taldar, lesnar og orðæðugreindar. Greint var hvort tónn fréttanna væri jákvæður eða neikvæður. Til að greina orðræðuna og draga fram helstu áhyggjur sem snúa að ferðaþjónustu sem birtist í prentmiðlunum var fréttunum skipt niður í þrjá flokka eftir því hvernig þeir hafa áhrif á ferðaþjónustuna. Þessir þrír flokkar eru efnahagslegir, umhverfislegir og félagslegir þættir. Þannig var hægt að varpa ljósi betur á hvar áhyggjurnar liggja. Helstu niðurstöðurnar sýna okkur að neikvæðar fréttir hefur aukist mjög mikið ef borin eru saman þessi tvö ár. Fréttir og greinar tengdum efnahagslegum og umhverfislegum þáttum bar mest á og eru áhyggjurnar mun fleiri á árinu 2014. Málefnin sem oftast var fjallað um voru tengd gjaldeyristekjum og fjárfestingu sem og náttúrupassi og gjaldtaka landeigenda á fjölsóttum ferðamannastöðum. Einnig var umfjöllun um fjölgun ferðamanna mikið rætt en lítið var komið inná þolmörk ferðamanna eða íbúa landsins. The purpose of this essay is to research and put a light on tourism discourse in the media. Articles and news were examined in two Icelandic newspapers, i.e. Morgunbladid and Frettabladid. The months that were chosen for the examination were February and July during the years 2004 and 2014. The research words were „tourist industry“ and „tourism“ and the search was made at two icelandic websites, namely Timarit.is and Fjölmiðlavaktin, databases that store scanned news from the newspapers in Iceland. The news that were observed were solely Icelandic. The research was carried out by counting and reading the newspaper articles and after that the ...