Heimasjúkraþjálfun á Íslandi: Þróun, reynsla og framtíðarhorfur

Bakgrunnur: Heimasjúkraþjálfun er þjónusta sem veitt er þeim sem þurfa á sjúkraþjálfun að halda en eiga ekki heimangengt. Lítið er til af upplýsingum um þjónustuna hér á landi og fáar rannsóknir hafa verið gerðar er varða efnið. Aldraðir eru stærsti hópur þeirra sem þiggja þjónustuna og má reikna me...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Súsanna Karlsdóttir 1988-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/21513
Description
Summary:Bakgrunnur: Heimasjúkraþjálfun er þjónusta sem veitt er þeim sem þurfa á sjúkraþjálfun að halda en eiga ekki heimangengt. Lítið er til af upplýsingum um þjónustuna hér á landi og fáar rannsóknir hafa verið gerðar er varða efnið. Aldraðir eru stærsti hópur þeirra sem þiggja þjónustuna og má reikna með aukinni þörf fyrir hana á næstu árum. Rannsóknir hafa sýnt að þessi tegund sjúkraþjálfunar getur verið árangursrík og kostnaðarhagkvæm í mörgum tilvikum. Tilgangur: Að stuðla að áframhaldandi þróun heimasjúkraþjálfunar sem hagkvæms þjónustuúrræðis fyrir þá sem eru á mörkum þess að geta búið í sjálfstæðri búsetu. Jafnframt er ætlunin að taka fyrstu skrefin í rannsóknum á þessu sviði sjúkraþjálfunar á Íslandi. Aðferð: Í rannsókninni var notuð blönduð rannsóknaraðferð. Gagnaöflun í rannsókninni fór annars vegar fram með viðtölum við þrjá heimasjúkraþjálfara og hins vegar var sóst eftir fyrirliggjandi gögnum frá SÍ. Við úrvinnslu á eigindlegum gögnum var Vancouver skólanum í fyrirbærafræði fylgt en forritið Excel var notað við úrvinnslu á megindlegum gögnum. Niðurstöður: Heimasjúkraþjálfun óx mikið á árunum 1999 til 2013. Á sama tíma hafa Sjúkratryggingar Íslands dregið úr þátttöku sinni í kostnaði einstaklinga þrátt fyrir að skjólstæðingahópurinn sé orðinn veikari. Sett var fram greiningarlíkan sem lýsir reynslu heimasjúkraþjálfara af starfi sínu. Yfirþemun í þessu líkani voru 1) gefandi en krefjandi starf, 2) vaxandi þörf og 3) lengi má gott bæta. Ályktun: Heimasjúkraþjálfun er vaxandi úrræði sem getur verið kostnaðarhagkvæm leið til að efla færni og heilsu meðal eldra fólks sem býr heima. Að því gefnu er mikilvægt að rannsaka frekar árangur og tækifæri innan heimasjúkraþjálfunar. Skilgreina þarf heimasjúkraþjálfun betur og þróa hana áfram með áherslu á þverfræðilega teymisvinnu í heimaþjónustu.